Sigurlíkur Reinfeldts aukast 14. september 2010 00:15 Leiðtogar rauðgræna bandalagsins Mona Sahlin, leiðtogi Sósíaldemókrata, ásamt leiðtoga Vinstriflokksins og fulltrúum Græningja.nordicphotos/AFP
Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra og leiðtogi sænskra hægri manna, þótti standa sig heldur betur en Mona Sahlin, leiðtogi sósíaldemókrata, í sjónvarpseinvígi á sunnudagskvöldið. Þingkosningar verða haldnar næsta sunnudag. Baráttan stendur á milli bandalags hægri flokkanna, sem hafa farið með stjórnartaumana síðustu árin, og bandalag rauðgrænu flokkanna svonefndu undir forystu sósíaldemókrata, sem síðustu áratugina hafa sjaldnast þurft að sitja lengi utan stjórnar. Samkvæmt skoðanakönnunum virðast þó borgaralegu flokkarnir ætla að halda meirihluta sínum annað kjörtímabil. Þeir mælast með tæplega 52 prósenta fylgi og hafa heldur sótt í sig veðrið síðustu daga, en rauðgræna bandalagið er með 42 prósent. Mona Sahlin hefur stillt málum þannig upp að sænska velferðarkerfið sé í hættu ef Reinfeldt fær að stjórna í fjögur ár í viðbót. Reinfeldt hefur hins vegar sagst ætla að viðhalda velferðarkerfinu með því að draga úr atvinnuleysi svo fleiri geti borgað skatta til að standa undir velferðinni.- gb
Fréttir Mest lesið Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Erlent Trump sagður hlynntur afsali lands Erlent Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Innlent Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Innlent Hitamet aldarinnar slegið Veður Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Innlent Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Erlent Rjómablíða hætt að teljast til tíðinda fyrir austan Veður Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Innlent Hátt í þrjú hundruð mótmæla útlendingastefnu stjórnvalda Innlent Fleiri fréttir Trump sagður hlynntur afsali lands Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Selenskí mun funda með Trump Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Sprengingar eftir eldingu Sjá meira