Zeppelin heldur áfram 8. janúar 2009 07:00 Robert Plant og Jimmy Page á endurkomutónleikum Led Zeppelin í London í desember 2007. Nordicphotos/getty
Umboðsmaður Jimmy Page hefur staðfest að Led Zeppelin muni á næstunni fara á tónleikaferð og taka upp nýja plötu án söngvarans Roberts Plant. Sögusagnir hafa verið á kreiki að sú yrði raunin og eftir að Plant tilkynnti í desember að hann tæki ekki þátt í frekari endurfundum hefur allt verið sett á fullt í leit að nýjum söngvara. „John Paul Jones og Jimmy Page njóta þess að spila saman, Jason Bonham er frábær trommari svo af hverju ekki? Við þurfum bara að finna söngvara," segir umboðsmaðurinn Peter Mensch. Hann gefur fremur lítið fyrir þátttöku Plants í Led Zeppelin-endurkomunni árið 2007: „Þeir skemmtu sér frábærlega vel saman við æfingar fyrir tónleikana, þeir þrír, áður en Robert mætti til leiks." Ýmsir þekktir söngvarar hafa verið orðaðir við söngvarastöðuna í Led Zeppelin, þar á meðal Chris Cornell úr Soundgarden og Audioslave og Steven Tyler úr Aerosmith. Umboðsmaðurinn Mensch vill lítið tjá sig um leitina að söngvaranum: „Þetta verður langt og erfitt ferli."
Mest lesið Kynlífsstellingar sem kveikja í kofanum Lífið Virkilega sláandi lífsreynsla að koma til Grindavíkur Lífið Pabbi fyrir tvítugt, ekkill þrítugur, afi um fertugt og veltir rúmum milljarði Áskorun Bein útsending: Haustbingó Blökastsins Lífið Slóvenar draga sig úr Eurovision ef Ísraelar verða með Lífið Vill brúa bilið milli almennings og réttarkerfisins Lífið Blondie verður stjarnan á RIFF um helgina Lífið Hildur Yeoman lofuð í hástert á Style Bubble Lífið Pamela slær á sögusagnirnar Lífið Tók sex ólíka stera fyrir hjartastoppið: „Þannig ég segi nei við sterum“ Lífið Fleiri fréttir Einvalalið kemur fram á Karlsvöku Laufey Lín endar Evróputúrinn á Íslandi Fjarsambandinu loksins lokið Frumsýning á Vísi: Fyrsta lag Valdimars í sjö ár og liðsmenn eru Bieber ævinlega þakklátir Raftónlistarhátíðin Extreme Chill haldin í sextánda sinn næstu helgi Laufey syngur á íslensku á nýrri plötu: „Hver annar af kynslóð Laufeyjar er að gera tónlist eins og þessa?“ Lög Sálarinnar verða að kvikmynd Enginn fær að skipta sér af tónlist Laufeyjar Tilkynnti tólftu plötuna í hlaðvarpi kærastans Sjá meira
Laufey syngur á íslensku á nýrri plötu: „Hver annar af kynslóð Laufeyjar er að gera tónlist eins og þessa?“