Þriggja stjörnu diskórokk 22. janúar 2009 03:30 Þriðja breiðskífa Franz Ferdinand, Tonight, kemur út á mánudaginn.
Þriðja breiðskífa Franz Ferdinand, Tonight, kemur út á mánudaginn. Margir bíða hennar með mikilli eftirvæntingu enda sló sveitin rækilega í gegn fyrir fimm árum með sinni fyrstu plötu. Hljómsveitin er Íslendingum að góðu kunn því tvívegis hefur hún spilað hér á landi, fyrst í Kaplakrika árið 2005 og síðan á Nasa tveimur árum síðar. Tonight fær þrjár stjörnur af fimm mögulegum í bresku tónlistartímaritunum Q og Uncut og einnig þrjár stjörnur í dagblöðunum The Guardian og Daily Telegraph. Flestir gagnrýnendur eru sammála um að platan hafi að geyma slatta af hressilegu diskórokki en helsti gallinn sé hversu lítið hljómsveitin hafi þróast síðan hún kom fyrst fram á sjónarsviðið og að lögin á plötunni séu of lík hvert öðru. „Hún hljómar ekki alltaf nógu vel en ætti samt að falla í kramið þar sem henni er ætlað að hljóma: af fullum krafti á indí-diskóstöðum," segir í dómi Daily Telegraph. Rúmt þrjú og hálft ár er liðið síðan síðasta plata Franz Ferdinand, You Could Have It So Much Better, kom út. „Síðasta plata hljómaði eins og unglingur að stunda kynlíf. Þessi er öruggari og hentar dansgólfinu aðeins betur," sagði söngvarinn Alex Kapranos um Tonight. Hljómsveitin ætlar í tónleikaferð um Evrópu til að fylgja gripnum eftir og hefst hún í Dublin 1. mars.
Mest lesið Opnar sig um augnlokaaðgerðina Lífið Þetta fengu ráðherrarnir gefins Lífið Maður geti þurft að díla við „konu sem er á túr“ og í vondu skapi Lífið Móðurmorð í blóðugu jólaboði Gagnrýni Þegar Bardot fór í „leyniferðalag“ til Íslands Lífið Von á barni með þeim nýja átta mánuðum eftir skilnaðinn Lífið Egill Ólafs og Gísli Marteinn sprækir á annan í jólum Menning Clooney orðinn franskur Lífið Illugi Jökuls gómaði rottuunga eftir klukkutíma eltingaleik Lífið Blö byrjar árið á bingói Lífið Fleiri fréttir Heitustu lögin á FM árið 2025 Afþakka miðann til Vínar vinni þeir undankeppnina Prikið vekur athygli út fyrir landsteinana Abba skilar 350 milljörðum í kassann Ísraelar fá að vera með í Eurovision Halda aðra tónleika á Íslandi fyrir þá sem misstu af Allt alltaf alls staðar í allra besta lagi Miley Cyrus trúlofuð Þau þykja skara fram úr í íslenskri tónlist Þau hlutu verðlaun Dags íslenskrar tónlistar Bein útsending: Hver hlýtur viðurkenningu á Degi íslenskrar tónlistar? Sjá meira