Bandarískir bankar þurfa tugi milljarða dollara í viðbót 7. maí 2009 10:25
Bandarískir bankar þurfa allt að 65 milljarða dollara í viðbót frá stjórnvöldum til að halda sér gangandi. Þetta er niðurstaða úr sérstöku álagsprófi sem framkvæmt var nýlega hjá 19 af stærstu bönkum Bandaríkjanna. Niðurstöðunni hefur verið lekið í fjölmiðla og samkvæmt frétt um málið á Bloomberg eru Bank of America, Citigroup, Wells Fargo og GMAC þeir bankar sem þurfa á aukinni aðstoð að halda. Raunar er talið að fjárþörf Bank of America nemi 34 milljörðum dollara að sögn þeirra sem eru kunnir málinu. Seðlabanki Bandaríkjanna og eftirlitsstofnanir landsins segja í tilkynningu í dag að bankarnir verði að bæta lausafjárstöðu sína og að þeir hafi fram til 8. júní til að leggja fram áætlanir sínar um slíkt. Góðu fréttirnar úr álagsprófinu eru að meirihluti fyrrgreindra 19 banka þarf ekki á frekari aðstoð að halda frá stjórnvöldum. Þeirra á meðal eru Goldman Sachs, JPMorgan og Morgan Stanley.
Mest lesið Samruni fyrirtækja: „Það sem ekki þarf að vera leyndarmál er ekki leyndarmál“ Atvinnulíf Vill lýsa yfir vantrausti á stjórnarmann vegna sautján ára tölvubréfs Viðskipti innlent Einungis áfengi í boði hjá Heimkaupum Viðskipti innlent Fjórir sérfræðingar skoða möguleika Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Atvinnulíf Falið að leiða þjónustu og upplifun hjá Mílu Viðskipti innlent „Þetta er ekki mjög töff en ég get ekki að þessu gert“ Atvinnulíf Framkvæmdastjóri í góðri æfingu með brandara og hrekki Atvinnulíf Gátu ekki fært sönnur á fullyrðingar um virkni sveppadropa og dufts Neytendur Tekjur Haga jukust á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira
Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Atvinnulíf
Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Atvinnulíf