Crespo búinn að gefast upp hjá Inter - samdi við Genoa Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. maí 2009 18:15 Hernan Crespo er á leiðinni til Genoa-liðsins. Mynd/AFP
Argentínumaðurinn Hernan Crespo, fyrrum leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Chelsea, hefur gefist upp á samkeppninni hjá ítölsku meisturunum í Internazionale og mun spila með Genoa á næsta tímabili. Zlatan Ibrahimovic, Mario Balotelli og Adriano voru allir á undan Crespo í goggunarröðinni hjá Inter á tímabilinu og það hjálpaði ekki mikið þótt að Adriano færi heim til Brasilíu. Enrico Preziosi, forseti Genoa, var himinlifandi með að hafa tryggt sér þjónustu þessa 33 ára argentínska framherja. „Þetta er mjög mikilvægt fyrir okkur og við erum mjög ánægð. Crespo er frábær leikmaður og við höfum fylgst með honum í langan tíma," sagði Preziosi. Hernan Crespo hefur skorað 136 mörk í 276 í ítölsku deildinni fyrir Parma, Lazio AC Milan og Internazionale. Hann skoraði 10 mörk í 30 leikjum með Chelsea 2005-06. Crespo er ekki eini leikmaður Inter sem gæti verið á leiðinni til Genoa því Preziosi sagði að stutt væri í að hann nældi einnig í Portúgalann Ricardo Quaresma. Genoa-liðið var í baráttu um Meistaradeildarsæti í vetur en rétt missti af því á lokasprettinum. Það eru liðin 85 ár síðan liðið varð síðast meistari en Genoa vann ítalska meistaratitilinn níu sinnum frá 1898 til 1924.
Ítalski boltinn Mest lesið Heimir fékk tilboð: „Pabbi vill ekki vera þar sem stuðningsmenn vilja hann ekki“ Fótbolti „Að fara frá heimahögunum og í borg óttans“ Íslenski boltinn Arsenal að missa menn í meiðsli Fótbolti Þungavigtin: Jói Kalli á Tene níu dögum fyrir bikarúrslitaleik Fótbolti Dagskráin í dag: Úrslitastund í Varsjá Fótbolti Hvernig umspil færi Ísland í? Fótbolti Atli Viðar segir Vöndu ekki réttu manneskjuna til að leiða KSÍ inn í framtíðina Íslenski boltinn Fyrsti þjálfarinn í NBA fokinn Körfubolti Rebrov: Karakterinn lykilatriði Fótbolti Vonast til að Barcelona geti stöðvað sigurgöngu Lyon Fótbolti Fleiri fréttir Heimir fékk tilboð: „Pabbi vill ekki vera þar sem stuðningsmenn vilja hann ekki“ „Að fara frá heimahögunum og í borg óttans“ Rebrov: Karakterinn lykilatriði Dagskráin í dag: Úrslitastund í Varsjá Arsenal að missa menn í meiðsli Vigdís Lilja á skotskónum Hákon: Þú vilt spila þessa leiki Spánn og Austurríki við það að komast á HM ´26 Åge Hareide glímir við sjúkdóm Leiðin á HM: Sögulegar sættir í Varsjá Arna og Sædís spiluðu í sigri Våleranga „Eggert kominn með stóra brosið og allir glaðir“ Belgar í brasi og þurfa að bíða eftir HM-sæti Svona var fundur Arnars fyrir „dramatík í níutíu mínútur“ Bökuðu botnliðið í miðjum slag við Blika Tólfan boðar til partýs í Varsjá Jói Kalli hættur fjölskyldunnar vegna og Fannar tekur við Lofar að fara sparlega með Isak Skrautlegur ferðadagur Hefði hætt ef Eriksen hefði ekki lifað af FCK-strákarnir tryggðu Íslandi sigur Veðbankar telja mun líklegra að Ísland falli úr leik Leikmenn dýrki Heimi sem ætti að fá nýjan samning Hvernig umspil færi Ísland í? Haaland sótti sjötíu hamborgara fyrir HM-farana Holland getur fagnað HM-sæti en Þýskaland þarf stig Króatar á HM en draumur Færeyja úti Afar óvænt tap þegar Finnar hylltu goðsögn Hjammi með mikla reynslu: „Kannski ekkert sérstakt í tuttugu tilraunum“ Rosenörn yfirgefur FH Sjá meira