Fyrrverandi starfsmaður í lánadeild Kaupþings á lista yfir grunaða 11. október 2009 11:59
Fyrrverandi starfsmaður í lánadeild Kaupþings, sem nú hefur umsjón með norrænum eignum bankans fyrir kröfuhafa, er sagður á lista yfir grunaða í rannsókn sérstaks saksóknara á kaupum Al-Thanis á hlut í Kaupþingi. Bresku blöðin Guardian og Observer greina frá því í dag að Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, sé með réttarstöðu grunaðs manns í rannsókn sérstaks saksóknara á kaupum Katarbúans Al-Thani á rúmlega fimm prósenta hlut í bankanum. Fréttastofa hefur áður greint frá því að þeir Sigurður, Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri bankans og Ólafur Ólafsson, einn stærsti hluthafinn, hafi réttarstöðu grunaðra manna í rannsókninni. Guardian fjallar einnig um Hreiðar Má Sigurðsson og Ólaf Ólafsson og segir þá liggja undir grun í málinu. Þá segir í blaðinu að lögmaðurinn Telma Halldórsdóttir, sem sat í stjórn Q Finance Holding, félags Al-Thani sem hélt utan um hlut hans í Kaupþingi og Halldór Bjarkar Lúðvígsson, fyrrverandi starfsmaður hjá lánadeild Kaupþings sem nú hefur umsjón með norrænum eignum bankans fyrir kröfuhafa séu á listanum yfir grunaða. Það sé frekar neyðarlegt fyrir skilanefnd bankans þótt stöðu Halldórs Bjarka gæti seinna verið breytt í vitni. Fréttastofa reyndi að ná tali af formanni skilanefndar Kaupþings í morgun, án árangurs. Grunur leikur á að kaup sjeiksins frá Katar á stórum hlut í Kaupþingi hafi verið sýndarviðskipti, en þau voru tilkynnt í lok september á síðasta ári, rétt fyrir bankahrun. Fjármálaeftirlitið og sérstakur saksóknari hafa mörg mál er tengjast markaðsmisnotkun og sýndarviðskiptum til rannsóknar í kjölfar bankahrunsins. Breska sunnudagsblaðið Observer segir, að Sigurður Einarsson, sem búi í einu flottasta hverfi London, sé fyrsti stjórnandi banka í Evrópu sem fær slíka stöðu. Það er reyndar ekki alveg rétt, því Sigurjón Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, hefur réttarstöðu grunaðs manns í rannsókn sérstaks saksóknara á Imon-málinu svokallaða.
Tengdar fréttir Sigurður Einarsson með stöðu grunaðs manns Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, er með réttarstöðu grunaðs manns í rannsókn sérstaks saksóknara á kaupum Katarbúans Al-Thani á rúmlega fimm prósent hlut í bankanum. Breska blaðið Guardian greinir frá því í dag. 11. október 2009 07:55 Mest lesið Sorglegt að þurfa að hætta rekstri eftir 38 ár í Hveragerði Viðskipti innlent Starbucks opnaði á Laugavegi í dag Viðskipti innlent Krefja nýjan rektor um að skólinn fari að lögum Viðskipti innlent Svikarar nýti sumarfrí til að blekkja fyrirtæki til að millifæra háar upphæðir Viðskipti innlent Ná að spara hver mánaðarmót en hvað svo? Viðskipti innlent Oft slegist um innstungurnar á tjaldsvæðunum Neytendur Sjónvarpsstöðin Sýn verður í opinni dagskrá Viðskipti innlent Ekki flaska á að undirbúa sumarfríið þitt í vinnunni Atvinnulíf Tillaga Vilhjálms felld með nánast öllum atkvæðum Viðskipti innlent Einungis áfengi í boði hjá Heimkaupum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira
Sigurður Einarsson með stöðu grunaðs manns Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, er með réttarstöðu grunaðs manns í rannsókn sérstaks saksóknara á kaupum Katarbúans Al-Thani á rúmlega fimm prósent hlut í bankanum. Breska blaðið Guardian greinir frá því í dag. 11. október 2009 07:55