Kröfuhafar Landsbankans á Guernsey fá 25% í ágúst 10. maí 2009 08:21
Þeir sparifjáreigendur sem áttu innistæður hjá Landsbankanum á Guernsey munu fá 25% af þeim borgaðar út í ágúst n.k. Þetta kemur fram í frétt á BBC en fólkið hefur þegar fengið 30% af fé sínu endurgreitt. Deloitte and Touche sem annast stjórn bankans sendu frá sér tilkynningu á föstudag þar sem fram kemur að þeir reikni með að endanleg greiðsla til sparifjáreigendanna muni nema á bilinu 68% til 89%. Þetta er þó háð því hve vel gengur að innheimta lán bankans í framtíðinni. Alls áttu yfir 2.000 manns innistæður í bankanum þegar hann fór í þrot s.l. haust og nam heildarupphæðin rúmlega 117 milljónum punda eða rúmlega 22 milljörðum kr. Hópar sparifjáreigenda í bankanum hafa barist fyrir því að fá fé sitt endurgreitt eftir að bankinn komst í þrot. Í skýrslu breskra stjórnvalda frá í apríl segir hinsvegar að íbúar á Guernsey og sparifjáreigendur á öðrum svæðum sem ekki heyra beint undir bresku krúnuna eigi ekki rétt á bótum frá stjórnvöldum.
Mest lesið Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Viðskipti innlent Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Viðskipti innlent Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Viðskipti innlent Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Viðskipti innlent Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Viðskipti innlent Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira