Eru ekki búnar að mæta Dönum í tólf ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. mars 2009 13:45 Danir fagna öðru marka sinna á móti Norðmönnum. Mynd/AP
Það er allt annað en daglegt brauð að íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mæti frænkum sínum frá Danmörku í A-landsleik. Í raun er landsleikur þjóðanna aðeins sá þriðji í sögunni og ennfremur sá fyrsti í tólf ár. Danir hafa unnið þriggja marka sigur á báðum A-landsleikjum þjóðanna, fyrst 0-3 1996 og svo 1-4 árið eftir. Báðir leikirnir voru í Algarve-bikarnum eins og sá í dag. Danska liðið varð í fjórða sæti á báðum þessum mótum, tapaði 1-2 fyrir Kína í leiknum 3. sætið 1996 og síðan í vítaspyrnukeppni á móti Svíum í bronsleiknum árið eftir. Danir hafa spilað vel á Algarve-bikarnum til þessa, voru síst lakari aðillinn í 0-2 tapi fyrir Bandaríkjunum í fyrsta leik og unnu svo 2-0 sigur á Noregi í síðasta leik. Ísland er með markatöluna 3-2 en danska liðið er með markatöluna 2-2. Stelpunum okkar nægir því jafntefli í dag til þess að tryggja sér sæti í bronsleiknum. Katrín Jónsdóttir, fyrirliði íslenska liðsins í leiknum í dag, var með í báðum leikjunum gegn Dönum fyrir tólf og þrettán árum síðar og eini leikmaður Íslands síðan þá sem er enn í landsliðinu. Katrín lék allar 90 mínúturnar í þessum tveimur leikjum. Danir eru í riðli með Finnum, Hollendingum og Úkraínumönnum á EM en Ísland er í riðli með Frakklandi, Noregi og Þýskalandi.
Íslenski boltinn Mest lesið Súkkulaðimjólkin sögð betri fyrir íþróttafólk en íþrótta- eða orkudrykkir Sport Norðmenn rífast um hvort kynferðisafbrotamaður eigi að spila með landsliðinu Fótbolti Fyrri úrslitaleikurinn af tveimur Fótbolti Yfirmaður dómara segir það rétt að dæma markið af Liverpool Enski boltinn Tveir áhorfendur létust á mismunandi tímum á sama leikvangi Sport „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Íslenski boltinn Svona var blaðamannafundur Íslands í Bakú Fótbolti Ísold verður bolabítur og heldur til á upphafsslóðum REM næstu árin Sport Saka FIFA um að stofna „gervi“ leikmannasamtök Fótbolti San Marínó gæti tryggt sig í umspil um HM-sæti með því að tapa nógu stórt Fótbolti Fleiri fréttir „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Eiður Aron fylgir Davíð Smára til Njarðvíkur Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Sjá meira