Vaxtakostnaður almennings í Danmörku lækkar töluvert 27. október 2009 09:34
Vaxtakostnaður almennings í Danmörku hefur lækkað töluvert frá því í fyrra. Vextir sem Danir greiða lánastofnunum sínum hafa þannig minnkað um 2,1 milljarð danskra kr., eða um 50 milljarða kr., milli mánaðanna nóvember í fyrra og september í ár. Samkvæmt upplýsingum frá danska seðlabankanum sem fjallað er um í börsen.dk námu vaxtagreiðslur Dana 14% af ráðstöfunartekjum þeirra á þriðja ársfjórðungi ársins miðað við 17% á fjórða ársfjórðungi síðasta árs. Í heildina greiddu Danir 9,5 milljarða danskra kr. í vexti í september sem er 2,1 milljarði dkr. minna en í nóvember í fyrra. Þessi lækkun á vaxtakostnaði Dana er fyrst og fremst tilkominn vegna lækkandi vaxta í landinu, að því er danski seðlabankinn segir. Frá því í nóvember á síðasta ári hafi vextir, sem Danir greiða af lánum sínum í bönkum og lánastofnunum í landinu, lækkað um 2,8 prósentustig.
Mest lesið Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Viðskipti innlent Farþegar elska lopapeysur Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Innkalla te sem innihélt ál Neytendur Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira