Séreignasparnaðurinn bjargaði danska ferðaskrifstofugeiranum 26. júlí 2009 10:00
Séreignasparnaðurinn sem Danir fengu greiddan út í ár, líkt og Íslendingar, hefur bjargað ferðaskrifstofugeiranum í Danmörku frá hruni. Er nú svo komið að færri komast í sólarlandaferð í sumar en vildu. Stig Ellingsölustjóri Star Tours er ekki í vafa um þetta í samtali við börsen.dk þegar hann er spurður um hin óvæntu eftirspurn eftir sólarlandaferðum í Danmörku í sumar. "Það er enginn vafi á því að ferðaskrifstofugeiranum var bjargað á síðustu sundu af séreignasparnaðinum," segir Elling. "Þetta sumar endar næstum eins vel og sumarið í fyrra og á því áttum við alls ekki von." Um 260.000 Danir hafa farið í frí til útlanda í ár og er það nálægt metinu sem sett var síðasta sumar. Vinsælustu áfangastaðir eru í Tyrklandi, Grikklandi og á Spáni. Og ferðalöngunin heldur áfram fram á haustið. Hinsvegar gerðu ferðaskrifstofur Danmerkur ráð fyrir miklum samdrætti í ár sökum fjármálakreppunnar og drógu mikið úr framboði sínu. Það hefur komið í kollinn á þeim nú því allar ferðir eru uppseldar og slegist um þau pláss sem losna. "Framtíðin í geiranum er mun bjartari en við gerðum ráð fyrir," segir Elling. "Hvað okkur varðar getum við nú blásið af kreppuna."
Mest lesið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Viðskipti innlent Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira