Met hjá Þorbergi í Laugavegshlaupinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. júlí 2009 12:45 Hér sjást menn leggja af stað í Laugavegshlaupið í gær.
Þorbergur Ingi Jónsson, 26 ára ÍR-ingur, setti nýtt met í Laugavegshlaupinu sem fór fram í gær á milli Landmannalauga og Þórsmerkur. Þorbergur kom í mark á tímanum 4 klukkustundir og 20 mínútur en gamla metið átti Bandaríkjamaðurinn Charles Hubbard og var það 4 klukkustundir og 39 mínútur. Sigurvegarinn í kvennaflokki, Hólmfríður Vala Svavarsdóttir, var mjög nálægt því að slá metið í kvennaflokki og bætti persónulegan árangur sinn um hálftíma en í fyrra hljóp hún á 6:03:50. Hlaupið var ræst í Landmannalaugum í gær kl. 9.00. Alls lögðu 321 hlaupari af stað, þar af 59 erlendir þátttakendur. Veðrið var mjög gott í Landmannalaugum, sól öðru hvoru og hægur vindur. Á leiðinni voru hlauparar hinsvegar ekki eins heppnir með veður og lentu þeir meðal annars í snjókomu. Í Þórsmörk var rigning og hæglætis veður. Af þessum 321 hlaupara sem lögðu af af stað frá Landmannalaugum þá náðu 313 að koma í mark. Einungis átta þurftu að stoppa á leiðinni sem er mjög lítill fjöldi miðað við oft áður. Aldrei hafa fleiri tekið þátt í og lokið Laugavegshlaupinu sem nú var haldið í 13.sinn. Fyrstu karlar í mark 1. Þorbergur Ingi Jónsson, ÍSL, 4:20:32 (1982) 2. Guðmundur Sigurðsson, ÍSL, 4:54:15 (1960) 3. Tuomas Veli Tapio Maisala, FIN, 5:03:43 (1976) Fyrstu konur í mark 1. Hólmfríður Vala Svavarsdóttir, ÍSL, 5:33:10 (1974) 2. Ásdís Söebeck Kristjánsdóttir, ÍSL, 5:36:15 (1967) 3. Rakel Ingólfsdóttir, ÍSL, 5:49:59 (1985)
Innlendar Mest lesið Þungavigtin: Jói Kalli á Tene níu dögum fyrir bikarúrslitaleik Fótbolti Hvernig umspil færi Ísland í? Fótbolti Arsenal að missa menn í meiðsli Fótbolti Vonast til að Barcelona geti stöðvað sigurgöngu Lyon Fótbolti Fyrsti þjálfarinn í NBA fokinn Körfubolti Atli Viðar segir Vöndu ekki réttu manneskjuna til að leiða KSÍ inn í framtíðina Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Úrslitastund í Varsjá Fótbolti Skotar og Danir spila úrslitaleik um farseðil á HM Sport Jón Axel gat ekki komið í veg fyrir tap Körfubolti Þungavigtin: Mike hefur miklar áhyggjur af því að KR falli í körfunni Körfubolti Fleiri fréttir Rebrov: Karakterinn lykilatriði Dagskráin í dag: Úrslitastund í Varsjá Fyrsti þjálfarinn í NBA fokinn Jón Axel gat ekki komið í veg fyrir tap Arsenal að missa menn í meiðsli Skotar og Danir spila úrslitaleik um farseðil á HM Vigdís Lilja á skotskónum Tumi Rúnarsson með fjögur mörk í sigri Ómar og Gísli í aðalhlutverkum hjá Magdeburg í dag Hákon: Þú vilt spila þessa leiki Haukar úr leik í Evrópubikar kvenna Svakalegt kvöld framundan í Úrvalsdeildinni í pílu Spánn og Austurríki við það að komast á HM ´26 Elvar með flestar stoðsendingar í sigri ÍBV með öruggan sigur í Garðabænum Åge Hareide glímir við sjúkdóm Leiðin á HM: Sögulegar sættir í Varsjá Misjafnt gengi Íslendinga í skandinavískum handbolta Arna og Sædís spiluðu í sigri Våleranga „Eggert kominn með stóra brosið og allir glaðir“ Selfoss lagði KA/Þór fyrir norðan Belgar í brasi og þurfa að bíða eftir HM-sæti Svona var fundur Arnars fyrir „dramatík í níutíu mínútur“ Bökuðu botnliðið í miðjum slag við Blika Úti er ævintýri hjá Elínu Klöru en HM tekur við Tólfan boðar til partýs í Varsjá Jói Kalli hættur fjölskyldunnar vegna og Fannar tekur við Lofar að fara sparlega með Isak Skrautlegur ferðadagur Hefði hætt ef Eriksen hefði ekki lifað af Sjá meira