Danskir bankar fá skellinn af gjaldþrotum Landic-félaga 15. júní 2009 14:43
Nokkrir danskir bankar munu að öllum líkindum fá skell af gjaldþroti þriggja dótturfélaga Landic Property í Danmörku. Þetta kemur fram í frétt frá fréttastofunni Direckt. „Við getum staðfest að nokkrir danskir bankar eru meðal kröfuhafanna," segir Viðar Þorkelsson forstjóri Landic Porperty í samtali við Direckt en hann vill ekki segja um hve háar upphæðir sé að ræða. „Ég get ekki á þessari stundu tjáð mig um stærðina á þessum skuldum. Hún fer eftir því hvernig málin þróast," segir Viðar. Fram kemur í fréttinni að Landic Property hafi komist í sviðsljósið í Danmörku á síðasta ári er félagið þurfti að taka aftur við Keops Development því að hið gjaldþrota Stones Invest hætti við kaupin á Keops. Auk Keops voru það Landic Property A/S og Landic Investment A/S, sem í dag lögðu fram beiðni um gjaldþrotaskipti hjá dómstólum í Kaupmannahöfn eins og sjá má í annarri frétt hér á síðunni.
Mest lesið Ná að spara hver mánaðarmót en hvað svo? Viðskipti innlent Oft slegist um innstungurnar á tjaldsvæðunum Neytendur Sjónvarpsstöðin Sýn verður í opinni dagskrá Viðskipti innlent Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ Viðskipti erlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Björn Berg svarar lesendum: Eyðir alltaf neyðarsjóðnum í vitleysu Neytendur EFTA-ríkin gera fríverslunarsamning við Mercusor-ríkin Viðskipti innlent SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Viðskipti erlent Tillaga Vilhjálms felld með nánast öllum atkvæðum Viðskipti innlent Nokkurra ára leit að kaupanda eigna í Helguvík lokið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira