Í dag ertu frjáls 25. apríl 2009 00:01 Umræðan Jón Líndal skrifar um alþingiskosningar @Megin-Ol umraedugr 8,3p 1.m :Í dag getur þú valið frelsi úr kreppu og höftum. Komist til áhrifa á Alþingi Íslendinga. Lýðræðishreyfingin er eina stjórnmálahreyfingin sem mun gefa þér málfrelsi og ákvarðanafrelsi í beinu og milliliðalausu lýðræði á Alþingi. Í dag getur þú fengið frelsi undan ánauð flokksræðis. Gefið mútuþægum pólitíkusum langt nef. Veittu þeim ærlega refsingu með því að eiga þína eigin rödd og þitt eigið atkvæði á Alþingi. Í dag skrifum við Íslandssöguna. Þetta er dagurinn sem þjóðin getur gert sögulegar lýðræðisumbætur og rekið spillinguna á dyr. xP Lýðræðishreyfingin er eini raunhæfi kosturinn ef þú vilt byggja nýtt Ísland. Enginn annar býður þér að virkja þitt atkvæði á Alþingi. Þú þarft ekki að afsala þér atkvæðisrétti næstu fjögur árin. Í Lýðræðishreyfingunni áttu þína rödd og þitt atkvæði á Alþingi sem þú getur nýtt þér hvenær sem þú vilt. Við ætlum að sækja þýfið, þá hundruð milljarða sem útrásarvíkingarnir stálu af þjóðinni og nota öll tiltæk ráð til að ná lögum yfir spilltu grísina. Við munum beita hryðjuverkalögum eins og Bretar gerðu gegn Landsbankanum þannig að öll sund lokist hjá spilltum útrásarvíkingum erlendis og þeir verði nauðbeygðir að koma heim og skila peningunum. Við munum markaðssetja Ísland sem land tækifæranna um allan heim og byggja upp nýja atvinnuvegi, nýja skattstofna og tekjur. Við munum semja við eigendur jöklabréfanna og fá þeim umbreytt í langtíma fjárfestingarsjóð atvinnulífsins til að fá erlendu fjárfestana með í að byggja upp nýtt Ísland og losa þannig þrýsting af krónunni. Við munum hagræða í stjórnkerfinu og ríkisreksrinum án skattahækkana. Við munum ekki leggja aukna skatta á aðþrengd heimili. Með víðtækri atvinnuuppbyggingu stækkum við kökuna og náum í nýja skattstofna. Við ætlum ekki á þing fyrir Alþjóðagjaldeyrissjóðinn sem hefur bannað núverandi ríkisstjórn að gera það sem mestu skiptir, að lækka vextina. Við ætlum á þing til að vinna að hag fyrirtækja og fólksins í landinu. Við viljum stöðva hrunið og tryggja störfin sem enn eru eftir í landinu, ásamt því að skapa ný störf og hjálpa heimilum út úr vandanum sem þegar er við að eiga. Við munum fá hingað færustu hagfræðinga heims til að aðstoða okkur við að umbreyta íslensku bönkunum úr sveitasparisjóðum í öflugar alþjóðlegar fjármálastofnanir. Þannig færum við súrefni í allt efnahagslífið, lækkum vexti og styrkjum gjaldmiðilinn. Merktu xP á kjörseðilinn, það er eina raunhæfa lausnin úr kreppunni. Höfundur er frambjóðandi Lýðræðishreyfingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Viltu skilja bílinn eftir heima? Sara Björg Sigurðardóttir Skoðun Metabolic Psychiatry: Ný nálgun í geðlækningum Vigdís M. Jónsdóttir Skoðun Fráleit túlkun á fornum texta breytir ekki staðreyndum Ómar Torfason Skoðun Hvaða framtíð bíður barna okkar árið 2050? Hafdís Hanna Ægisdóttir Skoðun Betri strætó strax í dag Dóra Björt Guðjónsdóttir Skoðun Þakkir til Sivjar Arnar Sigurðsson Skoðun Katrín eða Bjarni Svandís Svavarsdóttir Skoðun Falið heimsveldi Al Thani-fjölskyldunnar Finnur Th. Eiríksson Skoðun Bílastæðavandi í Reykjavík – tími til aðgerða Einar Sveinbjörn Guðmundsson Skoðun Við styðjum Ingólf Gíslason og annað starfsfólk í akademískri sniðgöngu Elía Hörpu og Önundarbur,Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir,Íris Ellenberger,Sjöfn Asare Skoðun
Við styðjum Ingólf Gíslason og annað starfsfólk í akademískri sniðgöngu Elía Hörpu og Önundarbur,Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir,Íris Ellenberger,Sjöfn Asare Skoðun
Við styðjum Ingólf Gíslason og annað starfsfólk í akademískri sniðgöngu Elía Hörpu og Önundarbur,Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir,Íris Ellenberger,Sjöfn Asare Skoðun