Umræður um Icesave á hollenska þinginu 24. júní 2009 14:11
Utandagskrárumræður um Icesave standa nú yfir í hollenska þinginu en hópur af fyrrum innistæðueigendum Icesave hefur krafist þess að fá innistæður sínar greiddar að fullu. Þessi hópur segir að handvömm fjármálaeftirlita Íslands og Hollands eigi ekki að bitna á þeim. Í frétt frá fréttastofunni Trouw um málið segir að þessi hópur þrýsti nú mikið á hollenska þingmenn að þeir geri eitthvað í málinu. Um er að ræða 200 einstaklinga sem áttu meir en 100.000 evrur hver inn á Icesave reikningum sínum þegar Landsbankinn komst í þrot s.l. haust. Eins og kunnugt er hafa stjórnvöld í Hollandi ákveðið að ábyrgjast allar innistæður á Icesave upp að 100.000 evrum. Íslendingar eiga svo að borga rúmlega 20.000 evrur að hámarki af hverri innistæðu. Umræðan á hollenska þinginu snýst m.a. um hvort seðlabanki landsins hefði ekki átt að grípa inn í uppgang Icesave í Hollandi þegar ljóst var í hvert stefndi með Landsbankann. Einnig er rætt um orsakir þess að fjármálaeftirlit beggja landanna gripu ekki til viðeigandi ráðstafana þótt þeim hefði átt að vera dagljóst í hvaða óefni stefndi með Icesave.
Mest lesið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Viðskipti innlent Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Viðskipti innlent Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira