Hættur hjá Palermo í fjórða sinn Elvar Geir Magnússon skrifar 24. mars 2008 13:58 Ætli Francesco Guidolin sé nú farinn frá Palermo fyrir fullt og allt?
Francesco Guidolin heldur áfram að koma og fara hjá Palermo. Hann var í morgun rekinn úr starfi sem þjálfari liðsins en þetta er í fjórða sinn sem hann hættir sem þjálfari Palermo. Hann stýrði Palermo fyrst 2004 en hann tók við því í janúar það ár og náði góðum árangri. Hann kom liðinu upp í A-deildina og í Evrópusæti ári síðar. Eftir það var hann ráðinn til Genoa. Sumarið 2006 var hann óvænt ráðinn aftur til Palermo. Liðið byrjaði tímabilið vel en síðan fór að halla undan fæti og var hann rekinn 23. apríl í fyrra. Aðeins tuttugu dögum síðar var þó ákveðið að endurráða Guidolin sem stýrði liðinu út leiktíðina og lét síðan af störfum. Guidolin var síðan ráðinn í fjórða sinn sem þjálfari Palermo 26. nóvember síðastliðinn og sagði þá í tilkynningu frá Palermo að hann væri nú kominn til að vera. En annað kom á daginn og Guidolin var látinn taka pokann sinn í dag eftir tap gegn Genoa um helgina. Reiknað var með að Palermo myndi berjast um Evrópusæti á þessari leiktíð en liðið er í tólfta sæti deildarinnar. Maurizio Zamparini er forseti félagsins en hann er ekki þekktur fyrir mikla þolinmæði né að hugsa áður en hann framkvæmir. Stefano Colantuono hefur verið ráðinn aftur sem þjálfari Palermo en hann tók við liðinu síðasta sumar en var rekinn þegar Guidolin tók við í nóvember.
Ítalski boltinn Mest lesið Heimir fékk tilboð: „Pabbi vill ekki vera þar sem stuðningsmenn vilja hann ekki“ Fótbolti „Það verða breytingar“ Fótbolti „Að fara frá heimahögunum og í borg óttans“ Íslenski boltinn Þungavigtin: Jói Kalli á Tene níu dögum fyrir bikarúrslitaleik Fótbolti Atli Viðar segir Vöndu ekki réttu manneskjuna til að leiða KSÍ inn í framtíðina Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Úrslitastund í Varsjá Fótbolti Arsenal að missa menn í meiðsli Fótbolti Hvernig umspil færi Ísland í? Fótbolti Rebrov: Karakterinn lykilatriði Fótbolti Vonast til að Barcelona geti stöðvað sigurgöngu Lyon Fótbolti Fleiri fréttir Haaland þakklátur mömmu sinni Úkraína - Ísland | Úrslitaleikur í Varsjá Malinovskyi vonar að Albert eigi ekki sinn besta dag 200 gegn 18 þúsund „Það verða breytingar“ Heimir fékk tilboð: „Pabbi vill ekki vera þar sem stuðningsmenn vilja hann ekki“ „Að fara frá heimahögunum og í borg óttans“ Rebrov: Karakterinn lykilatriði Dagskráin í dag: Úrslitastund í Varsjá Arsenal að missa menn í meiðsli Vigdís Lilja á skotskónum Hákon: Þú vilt spila þessa leiki Spánn og Austurríki við það að komast á HM ´26 Åge Hareide glímir við sjúkdóm Leiðin á HM: Sögulegar sættir í Varsjá Arna og Sædís spiluðu í sigri Våleranga „Eggert kominn með stóra brosið og allir glaðir“ Belgar í brasi og þurfa að bíða eftir HM-sæti Svona var fundur Arnars fyrir „dramatík í níutíu mínútur“ Bökuðu botnliðið í miðjum slag við Blika Tólfan boðar til partýs í Varsjá Jói Kalli hættur fjölskyldunnar vegna og Fannar tekur við Lofar að fara sparlega með Isak Skrautlegur ferðadagur Hefði hætt ef Eriksen hefði ekki lifað af FCK-strákarnir tryggðu Íslandi sigur Veðbankar telja mun líklegra að Ísland falli úr leik Leikmenn dýrki Heimi sem ætti að fá nýjan samning Hvernig umspil færi Ísland í? Haaland sótti sjötíu hamborgara fyrir HM-farana Sjá meira