Mikið fjör í NBA í nótt 14. febrúar 2008 09:27 Manu Ginobili var sjóðandi heitur í Cleveland í nótt og hitti úr 15 af 20 skotum sínum - þar af 8 af 11 þristum Nordic Photos / Getty Images
Fjórtán leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt og margir þeirra mjög áhugaverðir. Detroit vann 10. leik sinn í röð í annað sinn á leiktíðinni og Houston vann 8. leik sinn í röð. Þá lauk LA Lakers 9 leikja útivallarispu sinni og vann 7 af þeim. San Antonio er líka á miklu ferðalagi og í nótt vann liðið góðan útisigur á Cleveland 112-105. Manu Ginobili fór á kostum í liði San Antonio og skoraði 46 stig og gaf 8 stoðsendingar og skoraði 8 þrista. Tim Duncan skoraði 23 stig og hirti 13 fráköst. LeBron James skoraði 39 stig fyrir Cleveland og gaf 9 stoðsendingar og Larry Hughes skoraði 26 stig. Orlando skellti Denver á heimavelli 109-98 þar sem Rashard Lewis skoraði 25 stig fyrir heimamenn og Dwight Howard skoraði 23 stig og hirti 24 fráköst. Carmelo Anthony skoraði 32 stig fyrir Denver og Allen Iverson 21 stig. Þessi leikur verður sýndur á sjónvarpsstöðinni Sýn annað kvöld. Philadelphia burstaði Memphis 102-88 og er komið í baráttu um sæti í úrslitakeppninni í Austurdeildinni á ný eftir fimmta sigurinn í röð. Andre Iguodala skoraði 29 stig fyrir Philadelphia en Hakim Warrick og Rudy Gay skoruðu 23 hvor fyrir Memphis. Toronto lagði New Jersey heima 109-91. Chris Bosh skoraði 27 stig fyrir Tortonto og Jose Calderon skoraði 22 stig og gaf 12 stoðsendingar. Vince Carter og Richard Jefferson skoruðu 15 stig hvor fyrir New Jersey - sem lék án Jason Kidd í nótt. Kidd var talinn á leið til Dallas í skiptum fyrir Devin Harris og fleiri í gærkvöld, en ekkert varð af skiptunum í bili í það minnsta því Devean George hjá Dallas nýtti sér klásúlu í samningi sínum og neitaði að fara til New Jersey. Hann var einn sjö leikmanna sem áttu að skipta um heimilisfang í þessum stóru skiptum. Charlotte lagði Atlanta í framlengdum leik 100-98. Joe Johnson skoraði 23 stig fyrir Atlanta en Raymond Felton skoraði 22 stig fyrir Charlotte og Emeka Okafor hirti 21 frákast. Boston vann fimmta leikinn í röð með sigri á New York heima 111-103. Paul Pierce skoraði 24 stig fyrir Boston en Jamal Crawford skoraði 26 stig fyrir New York. Detroit vann 10. leikinn í röð þegar það lagði Indiana heima 96-80. Chauncey Billups, Rip Hamilton og Tayshaun Prince skoruðu 14 stig hver í jöfnu liði Detroit en Ike Diogu var með 14 stig hjá Indiana. Detroit er eina liðið í NBA sem á að baki tvær tíu leikja sigurgöngur í deildinni í vetur. New Orleans lagði Milwaukee 111-107 á útivelli þar sem David West skoraði 22 stig fyrir New Orleans en Michael Redd setti 30 stig fyrir Milwaukee. LA Lakers burstaði Minnesota á útivelli 117-92 og lauk þar sem níu leikja keppnisferð sinni með 7 sigrum og 2 töpum. Kobe Bryant skoraði 29 stig fyrir Lakers í nótt, Pau Gasol skoraði 19 stig og hirti 9 fráköst og Lamar Odom náði þrefaldri tvennu með 10 stigum, 16 fráköstum og 10 stoðsendingum. Al Jefferson skoraði 19 stig og hirti 9 fráköst fyrir Minnesota. Dallas burstaði Portland heima 96-76 þar sem Dirk Nowitzki skoraði 37 stig og hirti 12 fráköst fyrir Dallas en Brandon Roy skoraði 25 fyrir Portland, sem er heldur að missa flugið eftir frábæran árangur í desember og janúar. Houston vann 8. leikinn í röð þegar það lagði Sacramento 89-87 á heimavelli. Yao Ming skoraði 25 stig og hirti 14 fráköst fyrir Houston en Ron Artest skoraði 30 stig fyrir Sacramento. Golden State skellti Phoenix heima 120-118 í hörkuleik. Monta Ellis skoraði 37 stig og hirti 9 fráköst fyrir Golden State en Amare Stoudemire skoraði 29 stig fyrir Phoenix. Utah lagði Seattle örugglega á útivelli 112-93. Carlos Boozer skoraði 22 stig, hirti 11 fráköst og gaf 10 stoðsendingar fyrir Utah og náði þarna fyrstu þreföldu tvennu sinni á ferlinum. Mehmet Okur skoraði 20 stig og hirti 10 fráköst og Deron Williams skoraði 17 stig og gaf 10 stoðsendingar. Kevin Durant skoraði 19 stig fyrir Seattle. Loks vann Washington nauman útisigur á LA Clippers 91-89 þar sem Antawn Jamison skoraði sigurkörfuna með því að blaka boltanum ofan í rétt fyrir leikslok. Jamison skoraði 29 stig og hirti 9 fráköst fyrir Washington í leiknum en Al Thornton skoraði 24 stig og hirti 9 fráköst fyrir Clippers. Í kvöld eru aðeins tveir leikir á dagskrá í deildinni og svo verður gert nokkurra daga hlé vegna stjörnuleiksins í New Orleans á sunnudagskvöldið. Staðan í NBA NBA bloggið á Vísi
NBA Mest lesið Biðla til FIFA um að hætta við miðdagsleiki af ótta við hita Fótbolti Gáttaðir á ótrúlegu skoti: „Yrði dæmt á þetta í blakinu“ Fótbolti Markaregn og þrenna er ÍA vann botnslaginn Fótbolti Fluminense sendi Inter heim Fótbolti Einn sá besti í heimi óvænt úr leik í fyrstu umferð Sport Arnór lagði upp og dramatískur sigur lærisveina Freys Fótbolti Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Körfubolti Fimm ástæður þess að Ísland falli strax út á EM Fótbolti Teflt í skjóli móbergsveggja í Laugarvatnshellum Sport Víkingar krækja í Óskar Borgþórs frá Sogndal Fótbolti Fleiri fréttir Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Hilmar Smári og Ægir endursemja við Stjörnuna Snýr aftur á Álftanes með hunangið Bragi semur við nýliðana Sjá meira