McGrady stal senunni í kínverska Superbowl 3. febrúar 2008 12:53 Yao Ming og Yi Jianlian voru báðir nokkuð frá sínu besta í nótt Nordic Photos / Getty Images
Um 200 milljónir Kínverja eru sagðar hafa fylgst með í stjónvarpi í nótt þegar Milwaukee Bucks mætti Houston Rockets í NBA deildinni - í leik sem fékk nafnið kínverski Superbowl. Kínversku landsliðsmennirnir Yao Ming hjá Houston og Yi Jianlian hjá Milwaukee áttust þarna við með liðum sínum í síðari einvígi liðanna af tveimur í vetur - Eða Yi gegn Yao II. Talið er að um 200 milljónir hafi séð leikinn í sjónvarpi í Kína, eða allt að helmingi fleiri en sjá leikinn um Ofurskálina í NFL deildinni í kvöld. Hvorugur Kínverjanna náði sér á strik í leiknum í nótt en þess í stað var það Tracy McGrady sem stal senunni og skoraði 33 stig fyrir Houston í 91-83 sigri. Andrew Bogut skoraði 21 stig fyrir Milwaukee. Atlanta lagði New Jers3ey 104-92 þar sem Marvin Williams skoraði 24 stig fyrir Atlanta en Richard Jefferson skoraði 23 stig fyrir New Jersey. Orlando lagði Indiana á útivelli 121-115. Dwight Howard skoraði 24 stig og hirti 12 fráköst fyrir Orlando en Danny Granger skoraði 29 stig fyrir Indiana. Cleveland vann auðveldan sigur á meiðslum hrjáðu liði LA Clippers 98-84. LeBron James skoraði 28 stig, hirti 11 fráköst og gaf 7 stoðsendingar fyrir Cleveland en Al Thornton skoraði 23 stig og hirti 7 fráköst fyrir Clippers. Utah vann nokkuð auðveldan sigur á undirmönnuðu liði Memphis 110-91 í fyrsta leik Memphis án Pau Gasol sem er á leið til LA Lakers. Carlos Boozer skoraði 19 stig fyrir Utah og Rudy Gay 15 fyrir Memphis. Denver naut krafta Carmelo Anthony á ný þegar liðið lagði Charlotte heima 117-101. Jason Richardson skoraði 38 stig fyrir Charlotte og Anthony skoraði 25 stig og hirti 10 fráköst fyrir Denver. Sacramento vann nauman heimasigur á Chicago 105-101 þar sem Ron Artest skoraði 28 stig fyrir Sacramento, Kevin Martin 26 og miðherjinn Brad Miller skoraði 22 stig og hirti 20 fráköst gegn sínum gömlu félögum. Ben Gordon var stigahæstur hjá Chicago með 33 stig. Þá vann Seattle þriðja leikinn í röð í fyrsta skipti í vetur þegar það lagði New York á heimavelli sínum 86-85. Kevin Durant skoraði 21 stig fyrir Seattle en Zach Randolph 24 fyrir New York.
NBA Mest lesið Uppgjörið: Ísland - Finnland 0-1 | Finnar þorðu og stelpurnar okkar horfðu upp á tap Fótbolti „Ég var bara með niðurgang“ Fótbolti Glódís Perla skipti um stuttbuxur í miðjum leik Fótbolti Arnar Pétursson dæmdur úr leik á Íslandsmótinu og er mjög ósáttur Sport Systurnar hugsi vegna virkni stelpnanna á TikTok Fótbolti „Vonandi nær Sveindís að skora, þá verður ferðin þess virði“ Fótbolti Frábærar myndir af glöðum Íslendingum á EM Fótbolti Karólína Lea orðin leikmaður Inter Fótbolti Mörg hundruð manna móttaka í Tyrklandi: „Ég elska þig Logi!“ Fótbolti „Tinna mamma“ heldur áfram utan um stelpurnar sínar á EM Fótbolti Fleiri fréttir Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Hilmar Smári og Ægir endursemja við Stjörnuna Sjá meira