Íslensk siðfágun Þráinn Bertelsson skrifar 21. júlí 2008 06:00 Í upphafi sólarlandaferða fór miklum sögum af heimóttarhætti Íslendinga. Þá hófust öll ferðalög í keflvískum bárujárnsskúr þar sem ferðafólk tók til við að sturta í sig brenndum drykkjum klukkan sex á morgnana þótt penar dömur og bindindismenn létu sér nægja að kneifa sterkan bjór. Á þessum tíma stóð Íslendingum mikill stuggur af lifnaðarháttum annarra þjóða, einkum mataræði þeirra og höfðu það fyrir satt að útlendingar nærðust mestan part á froskum. Mótleikurinn var sá að taka með sér nestisskrínu og halda kyrru fyrir á hótelherbergi sínu og stýfa súra hrútspunga úr hnefa og skola niður með rommi í kók í stað þess að láta eitra fyrir sig á veitingahúsum. Útlendingar fengu snemma það orð á sig að þeir væru ekki með öllu frómir. Íslendingum sem hleyptu heimdraganum í fyrsta sinn var jafnan ráðlagt að gæta sín á þjófum, einkum vasaþjófum. Ástæðan fyrir því að Íslendingar lögðu það yfirleitt á sig að ferðast var sú uppgötvun að verðlag á áfengi virtist tengjast breiddargráðum, þannig að í sólarlöndum var hægt að drekka sig í ómegin fyrir sanngjarnt verð. Með tímanum hefur æ fleiri Íslendingum tekist að yfirvinna þann eðlislæga ótta sem íbúum smáeyja stafar af útlendingum. Ferðalög eru orðin almenn og mataræði þjóðarinnar hefur verið uppfært til samræmis við reynslu og kunnáttu annarra þjóða síðan frystikistan leysti saltketstunnuna af hólmi. Heimóttarhátturinn lifir þó enn í fordómafullri afstöðu til Evrópusambandsins, sem sumir telja i einlægni að hafi það eina markmið að tortíma sjálfstæði Íslendinga. Í sólarlöndum hér áður fyrr þóttu heimsóknir fordrukkinna Íslendinga næstum jafnfyrirkvíðanlegar og herferðir Þjóðverja. Allt hefur þetta þó breyst og mörlandinn er talinn meðal reffilegri þjóða á baðströndum heimsins. Jafnvel íslenskir karlmenn vekja athygli fyrir fágaða framkomu að ekki sé minnst á íslenskt kvenfólk sem löngum hefur talist alheimsprýði - enda eru íslenskar konur komnar af írskum prinsessum meðan við karlmennirnir rekjum ættir okkar til norskra víkingadurga. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þráinn Bertelsson Mest lesið Barnamorðingjar eru velkomnir til Íslands Björn B. Björnsson Skoðun Obb obb obb Bogi minn 698.500 kr. fyrir að breyta einum litlum flugmiða Kristján Logason Skoðun Sigurjón Þórðarson og sannleikurinn Sigurgeir B. Kristgeirsson Skoðun Beðið eftir aðgerð þar sem kvóti er búinn Dóra Lind Pálmarsdóttir Skoðun Stór-Ísrael Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Mannréttindi þarf ekki að endurhugsa — þau þarf að virða Alma Ýr Ingólfsdóttir Skoðun Sami hræðsluáróðurinn: EES á Íslandi 1993 og ESB í Svíþjóð 1994 Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Hvalveiðar sem vopn til að berjast gegn aðild að ESB Micah Garen Skoðun Stjórnsýsla Íslands er ekki „allt of lítil“, hún er „lítil og skilvirk“ Halldór Jörgen Olesen Skoðun Hvað varð um planið? Pétur Óskarsson Skoðun
Stjórnsýsla Íslands er ekki „allt of lítil“, hún er „lítil og skilvirk“ Halldór Jörgen Olesen Skoðun
Stjórnsýsla Íslands er ekki „allt of lítil“, hún er „lítil og skilvirk“ Halldór Jörgen Olesen Skoðun