Vélmennið og gúrúinn 31. júlí 2008 06:00 Æsispennandi framtíðarævintýri Wall-E og EVE í nýjustu mynd Pixar-versins.
Í þessari viku eru tvær myndir frumsýndar, nýjasta myndin frá teiknimyndaverinu Pixar um vélmennið WALL-E, og gamanmyndin The Love Guru með Mike Myers. Frumsýningarmyndirnar hafa vægast sagt fengið misgóðar móttökur. Á meðan gagnrýnendur keppast við að hlaða WALL-E lofi, er The Love Guru rifin niður og jafnvel sögð versta gamanmynd ársins.Vélmenni sem allir elskaDvergagrín Verne Troyer tekur á móti Mike Myers og félögum.Vélmennið WALL-E virðist við fyrstu sýn vera teiknuð samsuða af umrenningi Chaplins, Mr. Bean og E.T. Hann er aðalsöguhetjan í nýjustu mynd snillinganna hjá teiknimyndaverinu Pixar, sem hafa fært okkur myndir eins og Toy Story, Cars og The Incredibles.Myndin gerist í framtíðinni. Þegar mannkynið yfirgaf jörðina var WALL-E skilinn einn eftir til að taka til. Í hundruð einmanalegra ára hefur hann staðið í ströngu við tiltektir en líf hans tekur stórum breytingum þegar leitarvélmennið EVE birtist utan úr geimnum. WALL-E verður ástfanginn en EVE uppgötvar að WALL-E hefur óvart rekist á lykilinn að framtíð jarðarinnar. Mannkynið hefur lengi beðið eftir fregnum af því að óhætt sé að snúa heim svo EVE flýtir sér með fréttirnar út í geim. WALL-E eltir EVE og æsilegt ævintýri er í uppsiglingu þar sem gælukakkalakkar og bilað vélmannagengi kemur við sögu.Leikstjóri og handritshöfundur WALL-E er Andrew Stanton sem einnig gerði Finding Nemo og A Bug's Life. Hann er einn af elstu starfsmönnum Pixar-versins, hefur unnið þar síðan 1990. Myndin hefur fengið frábæra dóma og gagnrýnendur spyrja unnvörpum hvernig sé eiginlega hægt annað en að elska þetta sniðuga vélmenni.Þó að myndin sé að mestu án mikilvægra samtala er hún bæði sýnd á ensku og íslensku. Þau Atli Rafn Sigurðarson og Inga María Valdimarsdóttir tala fyrir Wall-E og EVE og munu aðallega hafa þurft að segja nafn hvort annars með mismunandi áherslum. Júlíus Agnarson upptökustjóri setti svo raddir þeirra í gegnum tölvuna og gerði þau „vélmannaleg".Lærimeistari ástarinnarMike Myers hefur gert góða hluti í gríninu eins og frábærir taktar hans í myndum eins og Austin Powers- og Waynes World-myndunum sanna. Síðast sást hann þrælmeikaður sem kötturinn í The Cat in the Hat, en hann hefur einnig talað sem aðalsöguhetjan í Shrek-teiknimyndunum.Nýrrar leikinnar myndar hefur því verið beðið með nokkurri eftirvæntingu. Mike skrifaði handritið að The Love Guru ásamt Graham Gordy. Leikstjóri er Marco Schnabel og þetta er hans fyrsta mynd. Myndin, sem gerir góðlátlegt grín að Bollywood-myndunum svokölluðu, fjallar um Pitka (Mike Myers). Pitka er Bandaríkjamaður sem var alinn upp á Indlandi af gúrúum (lærimeisturum). Pitka flytur til Bandaríkjanna og leitar þar að frægð og frama í heimi sjálfshjálpar og andlegrar viðleitni. Ýmsir koma við sögu á þeirri leið, meðal annarra Jessica Alba, Justin Timberlake og dvergurinn Verne Troyer, sem varð heimsfrægur með Mike Myers sem Mini me.Þrátt fyrir góðan ásetning þykir Mike Myers almennt hafa tekist fremur illa upp við að gera grín að Bollywood og hinum andlega heimi í Bandaríkjunum. Gúrúinn Pitka er fyrsti nýi karakterinn sem Mike býður upp á síðan Austin Powers kom fram. Kannski er Mike farinn að ryðga, hann þykir að minnsta kosti klikka á tímasetningum í gríninu. Það er örmjór þráður á milli fyndni og heimsku og Mike þykir í þessari mynd hafa týnt þeim þræði.
Mest lesið Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Lífið Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Lífið Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Lífið Myndaveisla: Aron Can var ekkert að flækja þetta Tónlist Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Lífið Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Bíó og sjónvarp 50+: Ertu að verða (eða orðin/n) eins og pabbi þinn eða mamma? Áskorun Hafna ásökun um lagastuld og líður eins og bekkjartrúð á Íslandi Tónlist „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Lífið Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Lífið Fleiri fréttir Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu „Þetta snýst um líf og dauða“ Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Sjónvarp Símans opnar veitu helgaða bresku sjónvarpsefni Sögulegur tvöfaldur sigur á Emmy-verðlaunum Af TikTok á skjáinn Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Alexander Skarsgård heiðraður á RIFF Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Stjörnurnar syngja inn haustið Stjörnufans á frumsýningu Um tímann og vatnið Rödd Eyrnaslapa og Optimusar Prime er öll Tim Curry er látinn Hasarmyndahjón heiðursgestir á RIFF Áhrifamikil rómantísk gamanmynd fær framhald Harington tekur við af uppteknum Hoult Ástin sem eftir er tilnefnd til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs Meghan snýr aftur á skjáinn Etur kappi við Obama og Reynolds Bautista hleypur í skarðið Depp í viðræðum um endurkomu sem Jack Sparrow Bestu hlutverk Hayden Panettiere Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Sjá meira