Danir íhuga að skjóta alla svarta svani Óli Tynes skrifar 15. september 2008 13:12 Danir vilja ekki sjá að svartir svanir fari að verpa þar. Mynd/Vefurinn
Danir íhuga nú að skjóta svarta svani sem þar koma í æ stærri flokkum, til þess að vernda sinn hvíta svanastofn. Danska blaðið Berlingske Tidende segir frá þessu undir fyrirsögninni: Svartur skuggi yfir þjóðfugli Danmerkur. Líffræðingurinn Knud Flensted segir í grein á heimasíðu Danska fuglafræðifélagsins að svartir svanir séu ekki danskur stofn heldur komi þeir upprunalega frá Ástralíu. Flestir svörtu svananna sem komi til Danmerkur séu fuglar sem hafi sloppið úr dýragörðum eða einkaræktendum skrúðfugla. Flensted segir að flestir fuglarnir sem sjáist í Danmörku komi líklega frá Hollandi þar sem séu um sjötíu villt pör. Fuglarnir eru enn ekki farnir að verpa í Danmörku og Flensted segir að gera beri allt sem hægt sé til að koma í veg fyrir það. Innfluttar tegundir frá öðrum heimshlutum geti raskað jafnvægi í náttúrunni og ógnað hinum danska stofni hvítra hnúðsvana. Flensted segir að til greina komi að skjóta alla svarta svani sem sjást til þess að koma í veg fyrir að þeir verpi. „Við höfum hingað til ekki talið það nauðsynlegt. En ég er hræddur um að við þurfum að fara að endurskoða þá afstöðu."
Erlent Mest lesið „Ef þessum skipum verður ógnað þá verður brugðist við því“ Innlent Segir ríkisvaldið hafa fallið á lyfjaprófi Innlent Bræður hvor sínum megin við hagræðinguna í borginni Innlent Úlfar vill verða lögreglustjóri á ný Innlent Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Erlent Þór kominn að Bandero og fylgir honum eftir Innlent „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Innlent Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Innlent Selja mannvirki bæjarins á flugvellinum á tólf milljónir Innlent „Held að foreldrar hafi bara tekið þetta til sín“ Innlent Fleiri fréttir Fimm sagðir látnir í skotárás nærri Hamborg Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Hátt í milljón sótt um dvalarleyfi á Spáni Sammælast um að bera klæði á vopnin Yfir þúsund látnir í hitabylgjunni í Evrópu og hitamet falla víða Rúmlega þrjátíu bjargað úr rústunum en tugþúsunda enn saknað Segir Ísraelsher hafa eyðilagt gangakerfi Hezbolla-samtakanna Ellefu létust í flugslysi í Frakklandi Fleiri en 1300 látnir vegna hitabylgju í Evrópu Íran gerir árásir á Barein og Kúveit í kjölfar árása Bandaríkjanna Tónlistarhátíðum aflýst vegna hita Stór hluti barna enn á samfélagsmiðlum hálfu ári eftir bannið Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Bandaríkjaher heldur árásum áfram í Íran Forseti Serbíu hyggst segja af sér 41,5 gráður í Þýskalandi og hitamet slegið Stór skjálfti í Afganistan Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Fyrrverandi ráðgjafi Trumps játar illa meðferð á trúnaðargögnum Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Finnst sturlað að Watergate hafi fellt Nixon Taugaeiturshúsið auglýst til sölu Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Konungur á meðal skattakónga Bretlands Áfengisbann í París um helgina Ein umfangsmesta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leitað í rústum bygginga og þúsunda er saknað Óttast rússneskar ögranir gegn Eystrasaltsríkjunum Sjá meira