Alíslensk tónleikadagskrá 26. september 2008 01:00 Eitt þeirra tónskálda sem eiga verk á tónleikum Sinfóníunnar í kvöld. Fréttablaðið/Arnþór
Sinfóníuhljómsveit Íslands kemur fram á heldur sérstökum tónleikum í kvöld, en á þeim verður einungis flutt tónlist eftir íslensk tónskáld. Ástæðan fyrir verkavalinu er sú að hljómsveitin heldur utan í næsta mánuði og kemur fram á tónleikum í Japan. Af því tilefni var sett saman þessi tónleikadagskrá þar sem kynnt er tónlist eftir nokkur af helstu tónskáldum íslensku þjóðarinnar. Verkin sem leikin verða eru Þrjú óhlutræn málverk eftir Jón Leifs, Eldur eftir Jórunni Viðar, Poemi eftir Hafliða Hallgrímsson, Columbine eftir Þorkel Sigurbjörnsson, Októ-Nóvember eftir Áskel Másson og Icerapp 2000 eftir Atla Heimi Sveinsson. Einleikarar á tónleikunum eru þau Hallfríður Ólafsdóttir flautuleikari og Ari Þór Vilhjálmsson fiðluleikari. Hljómsveitarstjóri er Petri Sakari. Verkin sem leikin verða eru ekki af lakara taginu, heldur hafa þau öll aukið hróður höfunda sinna svo um munar. Poemi eftir Hafliða Hallgrímsson er verðlaunaverk fyrir fiðlu, samið út frá myndum Marcs Chagall um Jakobsstigann. Columbine eftir Þorkel Sigurbjörnsson er flautukonsert sem virkar vel, ásamt óhlutbundnum tónmyndum Jóns Leifs, til að sýna ólíkar hliðar á íslenskum tónsmíðum. Ískalt verk Atla Heimis myndar einnig hressandi mótvægi við sjóðheitt strengjaverk Áskels Mássonar. Ekki má gleyma að minnast á Eld Jórunnar Viðar, en hljómsveitin leikur verkið í tilefni af níræðisafmæli tónskáldsins í desember á þessu ári. Eldur var fyrsti íslenski ballettinn, frumfluttur í Þjóðleikhúsinu árið 1950, og eitt aðalhljómsveitarverk Jórunnar. Tónleikarnir fara fram í Háskólabíói og hefjast kl. 19.30 í kvöld.- vþ
Mest lesið Íslendingar tjá sig um skaupið: „Versta skaup ever“ eða það besta í manna minnum? Lífið Nýársbingó Blökastsins á rólegasta degi ársins Lífið Króli og Birta eignuðust lítinn prins Lífið Opnar sig um augnlokaaðgerðina Lífið Þetta fengu ráðherrarnir gefins Lífið Þórdís Elva bað poppstjörnunnar Lífið Maður geti þurft að díla við „konu sem er á túr“ og í vondu skapi Lífið Fékk útskýringu frá ChatGPT eftir áratugaleit að svörum Lífið Blö byrjar árið á bingói Lífið Þegar Bardot fór í „leyniferðalag“ til Íslands Lífið Fleiri fréttir Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Heitustu lögin á FM árið 2025 Afþakka miðann til Vínar vinni þeir undankeppnina Prikið vekur athygli út fyrir landsteinana Abba skilar 350 milljörðum í kassann Ísraelar fá að vera með í Eurovision Halda aðra tónleika á Íslandi fyrir þá sem misstu af Allt alltaf alls staðar í allra besta lagi Miley Cyrus trúlofuð Þau þykja skara fram úr í íslenskri tónlist Þau hlutu verðlaun Dags íslenskrar tónlistar Bein útsending: Hver hlýtur viðurkenningu á Degi íslenskrar tónlistar? Sjá meira