Willum: Fínn bragur á liðinu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 4. maí 2008 22:42 Willum Þór Þórsson, þjálfari Vals.
Willum Þór Þórsson var vitanlega kampakátur með vortitlana tvo sem liðið hefur nú tryggt sér á síðustu dögum. Á fimmtudaginn varð Valur Lengjubikarmeistari karla eftir sigur á Fram í úrslitaleik og nú í kvöld meistarar meistaranna eftir sigur á bikarmeisturum FH. Willum er þjálfari Vals og sagði að sínir menn hefðu gert vel með því að standa í grjóthörðu liði FH eins og hann orðaði það. „FH-ingar mættu mjög öflugir til leiks og ætluðu að senda ákveðin skilaboð sem þeir gerðu vissulega með spilamennsku sinni." „En ég held að við höfum sýnt að það sé fínn bragur á liðinu en við verðum að átta okkur á því að nú er þessu undirbúningstímabili lokið og Íslandsmótið hefst fyrst um næstu helgi. Við erum ekki búnir að fá nein stig í því móti." Svo gæti farið að hann muni strax lenda í vandræðum með sóknarmenn því Dennis Bo Mortensen þurfti að fara snemma meiddur af velli. Þá hefur Helgi Sigurðsson ekki getað spilað með liðinu að undanförnu vegna meiðsla en hann mun þó allur að vera að koma til. „Dennis fékk högg á hnéð og er maður auðvitað alltaf smeykur við slík meiðsli. Hann og Helgi eru báðir mjög sterkir leikmenn en það sannaði sig í þessum leik að það kemur maður í manns stað. Við verðum bara að takast á við stöðuna eins og hún er."
Íslenski boltinn Mest lesið Súkkulaðimjólkin sögð betri fyrir íþróttafólk en íþrótta- eða orkudrykkir Sport Norðmenn rífast um hvort kynferðisafbrotamaður eigi að spila með landsliðinu Fótbolti Fyrri úrslitaleikurinn af tveimur Fótbolti Yfirmaður dómara segir það rétt að dæma markið af Liverpool Enski boltinn Tveir áhorfendur létust á mismunandi tímum á sama leikvangi Sport „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Íslenski boltinn Svona var blaðamannafundur Íslands í Bakú Fótbolti Ísold verður bolabítur og heldur til á upphafsslóðum REM næstu árin Sport Saka FIFA um að stofna „gervi“ leikmannasamtök Fótbolti „Ráðafólk fótboltans verður að hlusta á áhyggjur kvenna“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Eiður Aron fylgir Davíð Smára til Njarðvíkur Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Sjá meira