Blóð Busi Davi Dóri Þórhildur Elín Elínardóttir skrifar 5. nóvember 2008 06:00 Sama dag og síðustu fjöldamótmæli voru haldin á Austurvelli vegna hins hörmulega efnahagsástands átti ég leið um Langholtsveginn. Á horninu við Holtaveg stóð einmitt Helgi Hóseasson, mótmælandi Íslands, með prikið sitt og spjaldið. Óhagganlegur, friðsamur og svo dásamlega ómótstæðilegur að mig langaði mest að stökkva út úr bílnum og taka mér stöðu þarna hjá honum. Líklega hefði hann alls ekki kært sig um félagsskap minn, því líka þennan dag var ég eins og svo margir full gremju og andúðar á óréttlæti heimsins. Auk þess hef ég ekki nokkra þjálfun í pólitískum mótmælum að ráði, heldur hafa þau hingað til einskorðast við kátar fjöldagöngur á kvennafrídaginn niður Skólavörðustíg. Ég hefði enst svona fimm mínútur þarna á Langholtsveginum, þrátt fyrir göfugan málstað. Eftir að hafa prófað ýmis upphlaup og læti í gegnum tíðina til að fá rétt sinn viðurkenndan minnir Helgi Hóseasson orðið mest á pönkaralega útgáfu af Gandhi. Staðfastlega mættur á mótmælastaðinn sinn í bítið með misjafnlega dularfull skilaboð á prikinu. Stundum mynd af brennandi kirkju eða áleitnar og óþægilegar spurningar um sýkla og guð. Eða náttúrulega hið fræga ljóð í knöppum stíl. Svo skreppur hann kannski heim í mat en mætir svo svikalaust aftur til að berjast fyrir réttlætinu. Þrjóska embættismanna í garð þessa gamla manns er merkileg ráðgáta. Það er ekki eins og hann sé að biðja um mikið. Bara aggalitla riftun á sáttmála sem gerður var við guð í hans nafni án minnsta samráðs. Svolítið eins og að íslenska þjóðin þarf að standa skil á skuldum sem gerðar voru í hennar nafni án þess að spurt hafi verið um leyfi. Í tilfelli Helga snýst gjörningurinn ekki einu sinni um peninga heldur ungbarnaskírn og fermingu sem hvergi er kveðið á um nema í hefðum íslensku þjóðkirkjunnar. Hvorki geistleg né veraldleg yfirvöld telja sig hins vegar hafa heimild til að græja þetta smotterí, kannski af ótta við að móðga guð. Ég hef hins vegar fulla trú á að guð myndi sýna málinu ágætan skilning. Hann hefur fyrirgefið margt annað verra. Það væri líka hvetjandi fyrir okkur öll hin að sjá mótmæli skila árangri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þórhildur Elín Elínardóttir Mest lesið Þöggun - Okkar Borg Sigfús Aðalsteinsson ,Baldur Borgþóirsson Skoðun Mikið vona ég að þetta sé ekki rétt Jón Pétur Zimsen Skoðun Halldór 28.03.2026 Halldór Þau sem töluðu um hvalrekaskatt og hin sem þora að leggja hann á Þórður Snær Júlíusson Skoðun Að hafna viðræðum er að hafna upplýsingum Magnús Árni Skjöld Magnússon Skoðun Ég var rekinn Daði Már Kristófersson Skoðun Píslargangan gleymd – og börnin bera afleiðingarnar Sigurður Sigurðsson Skoðun Meira er ekki alltaf betra í skólastarfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Gerðir samningar sviknir af ESB Erna Bjarnadóttir Skoðun Frá hásæti orkudrottningar Kristín Linda Árnadóttir Skoðun