Tölvur sem tala íslensku Steinunn Stefánsdóttir skrifar 10. mars 2008 06:00 Í árdaga tölvunotkunar á Íslandi taldist það til kosta þess að nota Apple tölvur að viðmót þeirra var á íslensku. PC tölvur buðu hins vegar upp á viðmót á ensku og einnig flest forrit sem notuð voru á þær tölvur. Nú hafa Apple-tölvurnar því miður ekki lengur íslenskt viðmót og PC notendur eru orðnir svo vanir enskumælandi tölvum að margir hverjir fúlsa við þeim þýðingum sem þó eru fyrir hendi á notendaviðmóti í tölvum. Þessari þróun verður að snúa við. Margir vita ekki að Windows XP og Office 2003 stendur til boða á íslensku. Auk þess er gert ráð fyrir að þýðingar á Windows Vista og Office 2007 komi á markað í maí á þessu ári. Þessum þýðingum ættu íslenskir tölvunotendur að taka fagnandi. Það er lykilatriði fyrir þróun íslenskunnar sem gilds tungumáls í tölvuheimi að markaðurinn taki við þeim íslenskaða hugbúnaði sem þó er fyrir hendi. Þeir sem hafa setið fyrir framan tölvur í áraraðir hafa tilhneigingu til íhaldssemi og vilja margir hverjir halda í það enskumælandi viðmót sem þeir þekkja. Það er þó fullyrt hér að á innan við hálfum degi tækist hvaða tölvuhundi sem er að venjast því að viðmót tölvunnar væri á móðurmálinu. Nefna má farsíma til samanburðar. Í flestum nýlegri símum stendur til boða íslenskt viðmót og þeir eru fáir sem hafna því og taka ensku eða annað tungumál fram yfir móðurmálið þó að þeir hafi áður notað farsíma með ensku viðmóti. Mestu skiptir þó að þeir sem eru að hefja tölvunotkun, börnin, alist upp við að viðmót tölvunnar sé á móðurmáli þeirra. Þannig ættu allir skólar og leikskólar að hafa metnað til þess að sýna nemendum sínum aldrei Windows-viðmótið nema á íslensku. Foreldrar ættu einnig að krefjast þess af skólum barna sinna að viðmót tölvanna sé á íslensku um leið og heimilistölvan ætti vitanlega líka að blasa við barninu á móðurmálinu. Röksemdin sem gengur út á að gott sé að læra ensku af tölvunni stenst engan veginn. Næg tækifæri eru alls staðar í kringum okkur til að nema það góða tungumál. Auk þess verða tækifæri þeirra barna sem eiga í lestrarörðugleikum og erfiðleikum með að nema erlend tungumál miklu betri ef viðmót tölvu er á íslensku. Óðum styttist í að hlutur hins talaða máls aukist verulega í hinni stafrænu veröld. Ef við sofnum á verðinum nú og göngumst enskumælandi tölvuumhverfi algerlega á hönd gæti farið svo að eftir undrastuttan tíma stæðum við frammi fyrir því að geta ekki stýrt heimilistækjum okkar öðruvísi en að mæla við þau á enska tungu. Neytendur vilja síma með íslensku viðmóti. Sömuleiðis telja seljendur heimilistækja það til kosta, og auglýsa sérstaklega, stjórnborð á íslensku og íslenskar leiðbeiningar. Á sama hátt ættu neytendur að taka fagnandi íslensku viðmóti í tölvum sínum. Það getur skipt sköpum fyrir framtíð íslenskunnar. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Steinunn Stefánsdóttir Mest lesið Það sem ekki má segja um það sem enginn vill sjá Viðar Hreinsson Skoðun Krónan, Nettó, Hagkaup, Bónus - það er kominn tími á formlega sniðgöngu Helen Ólafsdóttir Skoðun Þingmenn auðvaldsins Karl Héðinn Kristjánsson Skoðun Af hverju er verðbólga ennþá svona há? Ólafur Margeirsson Skoðun Ójafnvægi í jöfnunarkerfinu Anna Sigríður Guðnadóttir,Halla Karen Kristjánsdóttir,Lovísa Jónsdóttir Skoðun Rán um hábjartan dag Guðbergur Egill Eyjólfsson Skoðun Listin að verða fullkomlega ósammála sjálfri sér á mettíma Þórður Snær Júlíusson Skoðun Sól, sumar og símafriður: 10 ráð varðandi skjánotkun í sumarfríinu Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Skúli Bragi Geirdal Skoðun Sósíalistaflokkurinn heimilislaus - hvað næst? Trausti Breiðfjörð Magnússon Skoðun Verðugur bandamaður? Steinar Harðarson Skoðun
Ójafnvægi í jöfnunarkerfinu Anna Sigríður Guðnadóttir,Halla Karen Kristjánsdóttir,Lovísa Jónsdóttir Skoðun
Sól, sumar og símafriður: 10 ráð varðandi skjánotkun í sumarfríinu Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Skúli Bragi Geirdal Skoðun
Ójafnvægi í jöfnunarkerfinu Anna Sigríður Guðnadóttir,Halla Karen Kristjánsdóttir,Lovísa Jónsdóttir Skoðun
Sól, sumar og símafriður: 10 ráð varðandi skjánotkun í sumarfríinu Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Skúli Bragi Geirdal Skoðun