Charlotte býður Varejao samning 4. desember 2007 17:10 Varejao gæti verið á leið til Charlotte NordicPhotos/GettyImages
Charlotte Hornets hefur boðið brasilíska leikmanninum Anderson Varejao þriggja ára samning upp á ríflega milljarð króna. Varejao er enn samningsbundinn Cleveland en hefur ekki spilað með liðinu í vetur eftir að slitnaði upp úr viðræðum um framlengingu á samningi hans. Þar sem leikmaðurinn hárprúði er samningsbundinn Cleveland hefur félagið rétt á að gera honum jafn gott eða betra tilboð en Charlotte og því er ekki útséð með það hvort hann slær til. Hann lýsti því yfir fyrir nokkrum dögum að þolinmæði sín í garð forráðamanna Cleveland væri á þrotum því þeir vildu ekki bjóða sér mannsæmandi samning. Talsmenn félagsins hafa hinsvegar lýst því yfir frá byrjun að vilji sé fyrir því hjá félaginu að fá hann aftur. Það hefur ekki gerst oft í NBA deildinni á síðustu árum að leikmaður fari í "verkfall" á borð við þetta í samningaviðræðum og óttast sumir að þessar róttæku aðgerðir Varejao og umboðsmanns hans eigi eftir að draga dilk á eftir sér í deildinni í framtíðinni. Varejao skoraði 6,8 stig og hirti 6,7 fráköst að meðaltali í leik með Cleveland síðasta vetur en framlag hans til liðsins verður vart lesið út úr tölfræðinni. Hann gegndi veigamiklu hlutverki í liðinu sem náði öllum að óvörum alla leið í lokaúrslitin síðasta sumar.
NBA Mest lesið Karólína Lea orðin leikmaður Inter Fótbolti Mörg hundruð manna móttaka í Tyrklandi: „Ég elska þig Logi!“ Fótbolti „Tinna mamma“ heldur áfram utan um stelpurnar sínar á EM Fótbolti Hófu Finnar sálfræðistríð? „Ákveðinn talsmáti sem þær nota“ Fótbolti „Verður gríðarlega stór stund fyrir mig“ Fótbolti Treyjan hans Bjarka í góðum höndum hjá Mainoo Fótbolti Dortmund mætir Real en Bellingham bræður mætast ekki Fótbolti „Reisn“ yfir ákvörðun Jóns Daða sem gaf stórliðunum langt nef Íslenski boltinn Biðjast afsökunar á kynningarmyndbandi Fótbolti „Engar svakalegar reglur hér“ Fótbolti Fleiri fréttir Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Hilmar Smári og Ægir endursemja við Stjörnuna Snýr aftur á Álftanes með hunangið Bragi semur við nýliðana Sjá meira