San Antonio vann fyrsta leikinn 21. maí 2007 09:07 San Antonio er að spila vel þessa dagana og þykir líklegast til að verða meistari.
San Antonio vann fyrsta leikinn gegn Utah í úrslitum Vesturdeildar NBA-deildarinnar í nótt, 108-100. Tim Duncan gegndi lykilhlutverki í sigri San Antonio, en fjölmiðlar vestra segja hann sjaldan eða aldrei hafa spilað betur á sínum ferli. Duncan skoraði 27 stig í nótt, en hirti auk þess 10 fráköst, gaf 5 stoðsendingar og blokkaði tvö skot. Manu Ginobili skilaði einnig sínu með 23 stigum og 10 stoðsendingum og þá skoraði Tony Parker 21 stig í leiknum. Hjá Utah átti Deron Williams frábæran leik og skoraði 34 stig. Sigur San Antonio var aldrei í hættu en liðið var með 19 stiga forystu í hálfleik og náði auk þess 18 stiga forskoti í 4. og síðasta leikhlutanum. Utah spilaði þó mun betur í síðari hálfleik en í þeim fyrri og sýndi þá að liðið á í fullu tré við San Antonio á góðum degi. “Í næsta leik munu þeir verða betur undirbúnir. Við megum eiga von á sömu frammistöðu í næsta leik hjá þeim eins og þeir sýndu í síðari hálfleik. Við verðum að vera tilbúnir að gera enn betur en það,” sagði Tony Parker í leikslok.
NBA Mest lesið Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Handbolti „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Fótbolti Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Handbolti Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Fótbolti Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Enski boltinn Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Víkingar með bakið upp við vegg Fótbolti Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna Sport Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt Fótbolti Fleiri fréttir „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjá meira