Nash með 23 stoðsendingar í sigri Phoenix 29. apríl 2007 23:35 Nash og Stoudemire áttu báðir stórleik í kvöld NordicPhotos/GettyImages
Phoenix Suns er komið í afar vænlega 3-1 stöðu í einvígi sínu við LA Lakers í úrslitakeppni NBA deildarinnar. Phoenix vann sannfærandi sigur 113-100 í Los Angeles í kvöld þar sem Steve Nash var nálægt því að slá metið yfir flestar stoðsendingar í leik í úrslitakeppni. Mike D´Antonio þjálfari Phoenix vildi að hans menn keyrðu betur upp hraðann í leik fjögur eftir tap í síðasta leik. Steve Nash varð við þeirri ósk hans og var með 15 stoðsendingar í fyrri hálfleik þar sem Phoenix keyrði á fullum krafti. Lakers-liðið náði nokkrum sinnum að gera leikinn áhugaverðan með því að minnka muninn, en gestirnir voru alltaf skrefinu á undan. Amare Stoudemire átti frábæran leik hjá Phoenix með 27 stig og 21 frákast, Shawn Marion skoraði 22 stig og hirti 11 fráköst og Steve Nash skoraði 17 stig og gaf 23 stoðsendingar. Magic Johnson (1984) fyrrum leikmaður LA Lakers og John Stockton (1988) fyrrum leikmaður Utah Jazz eiga metið í úrslitakeppni - sem er 24 stoðsendingar. Kobe Bryant var að venju atkvæðamestur í liði Lakers með 31 stig, gaf 9 stoðsendingar og hirti 7 fráköst. Lamar Odom skoraði 19 stig og hirti 13 fráköst. Phoenix getur gert út um einvígið með sigri í næsta leik sem fram fer á heimavelli liðsins á miðvikudagskvöldið.
NBA Mest lesið Hafdísi blöskraði valið: „Konur sem fá ekki blómin sem þær eiga skilið“ Handbolti Greindi allt fíaskóið í Grindavík: „Augljóst að hann er ekki að slást við dómarann“ Körfubolti Stóra boxkvöldinu í Gamla bíói slegið á frest Sport Mickelson neyðist til að sleppa Masters Golf Gæti Guardiola tekið við Ítölum? Fótbolti „Allt í einu var munurinn orðinn alltof mikill“ Sport „Bara sorry, ég sé þetta ekki gerast“ Körfubolti Orri öflugur en staða Sporting viðkvæm Handbolti Mæta meisturum Arsenal eftir sigur í framlengingu Fótbolti „Fallegt að sjá liðið stíga saman upp og taka skref áfram“ Sport Fleiri fréttir Greindi allt fíaskóið í Grindavík: „Augljóst að hann er ekki að slást við dómarann“ Uppgjörið:Valur - Keflavík 75-78| Keflavík stelur heimavellinum í fyrsta leik Tindastóll - ÍR 108-99 | Stólarnir veittu fyrsta höggið „Bara sorry, ég sé þetta ekki gerast“ „Nær alltaf að spýta einhverri geðveiki í þetta lið“ Grindvíkingar harma og fordæma hegðunina Fimm kærur á borði aganefndar: „Lítum þetta alvarlegum augum“ Uppgjörið:Grindavík - Njarðvík 87-97| Njarðvíkingar taka fyrsta leik með látum Sjáðu slagsmálin í Grindavík: Stuðningsmenn stukku út á gólf og lögreglan skarst í leikinn Uppgjörið Stjarnan - KR 97-86 | Stjarnan tók öll völd í seinni hálfleik Hamar/Þór að ganga frá nágrönnunum Martin með bakið upp við vegg Fjölniskonur stíga stór skref í átt að úrvalsdeild Tryggvi og félagar í fínni stöðu fyrir seinni leikinn „Þetta bara öskrar á fimm leiki“ Stjórn Keflavíkur sendir frá sér yfirlýsingu Berglind sú yngsta til að skora tuttugu stig í úrslitakeppni „Þá er hann langhættulegasti leikmaður þessarar deildar“ Leitar til Harry Potter gegn galdraskák Grindvíkinga Þjálfarinn á Tene degi fyrir leik í úrslitakeppni: „Ég væri brjáluð“ „Dómarinn þarf að vera 100% viss um að þetta sé viljandi“ Uppgjörið KR - Keflavík 85-69 | KR-ingar voru feti framar allan leikinn og innbyrtu sigur Uppgjörið: Valur - Grindavík 55-59 | Hrifsuðu heimavöllinn til sín Byrjaði á bekknum eftir að náttúran kallaði Uppgjörið: Njarðvík - Tindastóll 103-97 | Njarðvík tók forystuna í einvígi sínu við Tindastól Uppgjörið: Haukar - Stjarnan 106-100 | Endurkoma Stjörnunnar dugði ekki til Jóhanna stígur til hliðar eftir fimmtán ár sem formaður Ævintýraleg sigurkarfa Indiana-stráksins í Marsfárinu Skoraði 103 stig í körfuboltaleik „Hann er kominn aftur“ Sjá meira