Árás í þingi glæpaverk hugleysingja 12. apríl 2007 14:57 MYND/AP
Nouri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, lýsti árásinni í írakska þinginu í Bagdad í morgun sem glæpaverki hugleysingja og sagði að hún myndi ekki draga kjarkinn úr írökskum þingmönnum. Að minnsta kosti tveir írakskir þingmenn eru nú sagðir látnir og vel á annan tug manna særður eftir árásina sem varð í kaffiteríu í írakska þinginu þegar þingmenn og starfsmenn þingsins voru í hádegismat. Lögregla telur að um sjálfsmorðsárás sé að ræða en útilokar þó ekki að öðrum aðferðum hafi verið beitt. Þingið er á svokölluðu græna svæði í Bagdad þar sem öryggisgæsla er sérstaklega ströng. Bandaríkjastjórn hefur fordæmt árásina og sagði talsmaður Þjóðaröryggisstofnunar landsins að hún græfi ekki undan aðgerðum gegn uppreisnarhópum í Írak heldur lýsti fremur hörðum ásetningi uppreisnarmanna sem vildu ekki að Írakar byggju við frelsi. Fyrr í morgun var vörubíll hlaðinn sprengiefni sprengdur í loft upp á fjölfarinni brú í norðurhluta höfuborgarinnar. Brúin rifnaði í sundur og tvö höf hennar steyptust niður í Tígris-fljótið fyrir neðan og með þeim fjölmargir bílar. Átta manns hið minnsta létust í þessu hermdarverki og á þriðja tug særðist.
Írak Mest lesið Gat ekki lengur lesið en sagði engum frá því Innlent „Ég má ekki heita Hrísey en ég má heita Rodriguez“ Innlent „Þau eru að herja á börnin okkar“ Innlent Lofthelgi aftur lokað í Álaborg vegna drónaflugs Erlent James Comey ákærður vegna Rússarannsóknar Erlent Skvísur séu almennt frekar næringarsnauðar og börnin geti orðið matvönd Innlent Breytingar í vændum á skrifstofu forseta Innlent Minna fólk á að hafa vistir til þriggja daga á heimilinu Innlent Lægð sem valdi meiri usla Innlent Fullorðinn karlmaður lést í bílslysi Innlent Fleiri fréttir Lofthelgi aftur lokað í Álaborg vegna drónaflugs James Comey ákærður vegna Rússarannsóknar Segir NATO og ESB hafa lýst yfir stríði við Rússland Boðar alla herforingjana á fordæmalausan skyndifund Enn lítið vitað um leyniskyttuna og tilefni árásarinnar í Dallas Hóta Demókrötum með umfangsmiklum uppsögnum Fimm ára fangelsi fyrir að taka við fúlgum fjár frá Gaddafi Keppast við að ákæra Comey Trump krefst rannsóknar á „þríþættu skemmdarverki“ hjá SÞ Drónaflug í Danmörku: „Fjölþáttaógnin er að raungerast“ Leikskóli heimtar tugi þúsunda fyrir „listaverk“ barnanna Ætlar sér að koma böndum á sjónvarpsstöðvar Macron telur Trump ekki fylgjandi innlimun Vesturbakkans Sést til dróna við fjóra flugvelli í Danmörku Flugvellinum í Álaborg lokað vegna drónaflugs Segja árásina hafa beinst gegn ICE Pútín auki einfaldlega stríðsreksturinn verði hann ekki stöðvaður Sprenging í Osló talin tengjast sænsku glæpagengi Þrír skotnir af leyniskyttu við byggingu ICE í Dallas Biðjast afsökunar á „svörtum kafla“ í sögu Danmerkur og Grænlands Kenna Trump-liðum um bæði rúllustigann og textavélina Ekki staðfest hvort það hafi verið drónar sem röskuðu flugumferð í Osló Ekki pappírstígur heldur alvöru björn Vinsælum þáttarstjórnanda sagt upp vegna ásakana um brot gegn unglingsstúlku Drónamálið enn óupplýst: „Við erum heimskir nýgræðingar“ Kimmel snéri aftur, Trump til mikillar óánægju Rússland sé „pappírs tígur“ og Úkraínumenn geti unnið landið aftur Ákærði hálfur Íslendingur: Játaði morðið á Instagram tveimur vikum eftir það Sprenging í Osló og stórt svæði girt af Ryan Routh sekur um að reyna að myrða Trump Sjá meira