Toronto - Orlando í beinni í kvöld 21. mars 2007 20:20 Dwight Howard treður hér með tilþrifum yfir Chris Bosh í leik liðanna þann 7. febrúar. Þeir félagar áttu báðir sína bestu leiki á ferlinum það kvöldið NordicPhotos/GettyImages
Leikur Toronto Raptors og Orlando Magic í NBA deildinni verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu klukkan 23:00 í kvöld. Hér er á ferðinni athyglisverður slagur í Austurdeildinni þar sem tveir af bestu stóru mönnunum í deildinni kljást - þeir Chris Bosh og Dwight Howard. Toronto hefur tapað tveimur leikjum í röð eftir fjögurra leikja sigurgöngu þar áður en liðið er eftir sem áður í fyrsta sæti Atlantshafsriðilsins. Toronto hefur unnið 36 leiki og tapað 31. Chris Bosh er stigahæsti leikmaður Kanadaliðsins með 22,7 stig að meðaltali í leik, en hann setti persónulegt met með 41 stigi þegar þessi lið mættust þann 7. febrúar sl. Toronto verður án Andrea Bargnani í kvöld og í næstu leikjum eftir að hann fékk botnlangakast í gær. Orlando hefur ekki gengið vel á síðustu misserum en liðið vann þó einhvern besta sigur sinn á leiktíðinni á sunnudaginn þegar liðið stöðvaði níu leikja sigurgöngu meistara Miami Heat. Orlando vann þá örugglega 97-83 á útivelli og var það fyrsta tap Miami á heimavelli í 15 leikjum. Orlando er sem stendur í áttunda sæti Austurdeildarinnar og er í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppninni. Miðherjinn Dwight Howard er aðalstjarna Orlando, en hann átti sinn besta leik á ferlinum líkt og Chris Bosh þegar liðin mættust 7. febrúar - en þá skoraði Howard 32 stig og hitti úr 13 af 14 skotum sínum utan af velli.
NBA Mest lesið Messi laumaðist inn á leikvang Barcelona og lét engan vita Fótbolti Kominn með einkaleyfi á kaldasta fagnið í bransanum Enski boltinn „Allir í kringum íþróttir ættu að hafa áhyggjur“ Sport Slakur undirbúningur hjá Ármanni: „Þær virðast koma bara alveg af fjöllum“ Körfubolti Spilaði í NFL-deildinni nýbúinn að greinast með krabbamein Sport Dagskráin í dag: VARsjáin skoðar markið og Lokasóknin sækir til Nashville Sport Liverpool kvartar í dómarasamtökunum Enski boltinn Rúmlega þúsund leikmenn til rannsóknar: Liðsfélagi Loga settur í bann Fótbolti Sesko ekki með sjálfstraust og dregur sig úr landsliðshópnum Fótbolti Blikarnir taplausir á toppnum Körfubolti Fleiri fréttir Slakur undirbúningur hjá Ármanni: „Þær virðast koma bara alveg af fjöllum“ Blikarnir taplausir á toppnum Sonur Dominique Wilkins með vindmyllutroðsluna í blóðinu Kári og Kristó eru skemmtilegasta kombóið í þessari deild NBA-goðsögnin Lenny Wilkens látin „Er ekki alveg viss um hvar hann hefur lært körfubolta“ Maddie Sutton í sögubækurnar í fámennum hóp Martin stigahæstur með tvöfalda tvennu Keflvíkingar bæta framherja frá Slóveníu í hópinn NBA vill koma deild í Evrópu á koppinn Leikmaður ÍA búinn á því í upphitun Uppgjör: Grindavík - Keflavík 104-92 | Ekkert stöðvar Grindvíkinga Óli Óla: Við getum alveg eins hrokkið upp af á morgun Uppgjörið: Ármann - Tindastóll 77-110 | Tindastóll of stór biti fyrir Ármann Varð sá hávaxnasti í sögunni Tvítug körfuboltakona með tímamótafjárfestingu Ingibergur hættir sem formaður: „Miklar tilfinningar innra með mér“ „Verður kannski mest krefjandi fyrir börnin mín“ „Þarf ekki að láta aðra segja mér hvort að liðið sé nógu gott“ Uppgjörið: Njarðvík - Stjarnan 101-105 | Langþráður sigur Íslandsmeistarana ÍA - Valur 81-83 | Grátlegt tveggja stiga tap á nýjum heimavelli Þór Þ. - ÍR 100 - 98 | Fyrsta sigrinum fagnað í Þorlákshöfn Uppgjörið: Álftanes - KR 108-89 | Stórsigur gegn vængbrotnu liði Banninu aflétt og Bretland mun mæta Íslandi Sá húsið sitt brenna til kaldra kola „Ha, átti ég metið?“ Rebekka Rut nýliði í fyrsta landsliðshóp Salminen Uppgjörið: KR - Grindavík 68-85 | Gestirnir á toppinn Valskonur niðurlægðu Íslandsmeistarana Tryggvi með flest fráköst í Evrópusigri Sjá meira