Nýtt myndband Páls Óskars í anda Sin City 20. júní 2007 09:00 Teiknararnir Helgi Jóhannsson og Hlynur Ásgeirsson eiga heiðurinn að þeirri grafík sem sjást mun í nýju myndbandi Páls Óskars.
Nýtt myndband með Páli Óskari Hjálmtýssyni við lagið Allt fyrir ástina verður frumsýnt á föstudaginn og fullyrðir söngvarinn sjálfur að um „flottasta tónlistarmyndband sem gert hefur verið á Íslandi" sé að ræða. Gríðarlega mikill tími og fjármunir hafa verið lagðir í myndbandið en í því er stuðst við svokallaða „green-screen" tækni þar sem allur bakgrunnur er þrívíddarteiknaður. „Þetta hefur verið tveggja mánaða stanslaus vinna og ég vona að árangurinn verði eftir því," segir Páll Óskar en útlit myndbandsins þykir minna nokkuð á kvikmyndina Sin City eftir Robert Rodriguez, sem markaði ákveðin tímamót í notkun slíkrar tækni. Páll Óskar segir myndbandið það flottasta í sögu landsins. Hannes Þór Halldórsson leikstýrir myndbandinu og þótt hann taki sjálfur ekki alveg eins djúpt í árinni og Páll Óskar segir Hannes að meiri vinna sé lögð í bakgrunninn en áður hafi þekkst hér á landi. „Það er gríðarlegur metnaður fyrir þessu verkefni og við erum að feta nýjar slóðir hér á landi hvað varðar eftirvinnslu. Grafíkin er mjög flott," segir Hannes. Sin City mynd sem hlotið hefur mikið lof fyrir magnaða tæknivinnslu. Helgi Jóhannsson og Hlynur Ásgeirsson eru grafísku hönnuðurnir sem hafa umsjón yfir þrívíddarteikningunum sem notaðar eru í bakgrunni myndbandsins og hafa þeir varla litið upp frá tölvuskjánum síðustu daga, enda stuttur tími til stefnu. Gerð myndbandsins hefur staðið yfir frá því í miðjum apríl og er því gríðarlega mikið undir. „En við náum að klára þetta með sóma. Við sleppum því bara að sofa ef með þarf," sagði Helgi í samtali við Fréttablaðið. Allt fyrir ástina er fyrsta smáskífan af væntanlegri sólóplötu Páls Óskars en hljóðblöndun á henni stendur nú yfir. MySpace.com/palloskar
Mest lesið Íslendingar tjá sig um skaupið: „Versta skaup ever“ eða það besta í manna minnum? Lífið Nýársbingó Blökastsins á rólegasta degi ársins Lífið Króli og Birta eignuðust lítinn prins Lífið Opnar sig um augnlokaaðgerðina Lífið Þetta fengu ráðherrarnir gefins Lífið Þórdís Elva bað poppstjörnunnar Lífið Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Tónlist Í leyfi frá skjánum til að styðja eiginmanninn í veikindum Lífið Maður geti þurft að díla við „konu sem er á túr“ og í vondu skapi Lífið Fékk útskýringu frá ChatGPT eftir áratugaleit að svörum Lífið Fleiri fréttir Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Heitustu lögin á FM árið 2025 Afþakka miðann til Vínar vinni þeir undankeppnina Prikið vekur athygli út fyrir landsteinana Abba skilar 350 milljörðum í kassann Ísraelar fá að vera með í Eurovision Halda aðra tónleika á Íslandi fyrir þá sem misstu af Allt alltaf alls staðar í allra besta lagi Miley Cyrus trúlofuð Þau þykja skara fram úr í íslenskri tónlist Þau hlutu verðlaun Dags íslenskrar tónlistar Bein útsending: Hver hlýtur viðurkenningu á Degi íslenskrar tónlistar? Sjá meira