Nemar í skóla tímans 28. apríl 2007 13:00 Leiðirnar hafa alltof sjaldan legið saman. Margrét Helga Jóhannsdóttir og Sigurður Skúlason léku síðast saman árið 1969. Nú er kominn tími á samstarfið aftur.
Leikararnir góðkunnu Margrét Helga Jóhannsdóttir og Sigurður Skúlason fagna 40 ára leikafmæli sínu um þessar mundir, en þau útskrifuðust bæði frá Leiklistarskóla Þjóðleikhússins í maí 1967 að loknu þriggja ára námi. Af þessu tilefni efna þau til leiklistardagskrár í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu og flytja þar brot úr klassískum leikverkum eftir Shakespeare, Edward Albee og Halldór Laxness. Margrét Helga útskýrir að leiðir hennar Sigurðar hafi alltof sjaldan legið saman en þau hafa um áraraðir starfað hvort hjá sínu leikfélaginu. Þau léku saman í nokkur ár hjá Þjóðleikhúsinu en svo skildi leiðir. Sigurður hefur nú sagt föstum samningi sínum við Þjóðleikhúsið lausum en Margrét Helga, sem lengst af hefur starfað hjá Leikfélagi Reykjavíkur, æfir um þessar mundir verkið Lík í óskilum, eftir leikskáldið Anthony Neilson, í Borgarleikhúsinu. „Við höfum nú ekki fengið mikinn tíma til þess að rifja upp gamla daga,“ útskýrir Margrét Helga enda glíma leikararnir við verðug verkefni í textum Macbeths, Íslandsklukkunnar og leikritinu Hver er hræddur við Virginíu Woolf? Hvorugt þeirra hefur áður leikið í verkum þessum, utan þess að Margrét lék lítið hlutverk í Macbeth fyrir margt löngu. „Okkur langaði að glíma við eitthvað spennandi og þetta eru gullaldarbókmenntir,“ útskýrir Margrét Helga. „Við fengum þessa hugmynd og ákváðum að framkvæma hana. Stjórnendur leikhúsanna eru almennt ekki að sinna leikafmælum eða starfslokum og slíku. Maður verður að standa með sjálfum sér í þessum bransa og við gerum þetta upp á okkar eigin spýtur nema að Þjóðleikhúsið lánar okkur húsnæði og tæknifólk.“ Umsjónarmaður dagskrárinnar er Þórhallur Sigurðsson leikstjóri, Páll Ragnarsson sér um lýsingu en um tónlist og áhrifshljóð sér Gunnar Hrafnsson. Margrét Helga segist vera lítil fortíðarkona og kýs fremur að horfa framfyrir sig. Þegar þjarmað er að henni og þráspurt um ferilinn segir hún að með minnisstæðari verkefnum sínum hafi verið einleikurinn Sigrún Ástrós sem hún flutti oftar en hundrað sinnum hér um árin. „Það var kærkomið endurmenntunarferli sem ég dreif mig í sjálf,“ segir hún og bætir við að nýlega hafi hún dustað rykið af Sigrúnu Ástrósu og æft upp hluta verksins á ný. „Ég er aðeins búin að vera að leika það og finnst það ofsalega gaman. Ég hefði ekkert á móti því að gera meira af því, til dæmis fyrir svona afmæli og slíkt,“ segir hún og kímir. Ráðgert er að þau Sigurður flytji dagskrána „Í skóla tímans“ þrisvar sinnum en tvær sýningar verða eftir helgi. Dagskráin tekur um klukkustund í flutningi en milli atriðanna eru sýndar myndir frá leikferli þeirra beggja. „Leikverkin sjálf þurfa engrar kynningar með,“ útskýrir Margrét. „Þetta eru svo flottir textar og ögrandi en erfitt verkefni. Nú ef við gleymum einhverju getum við náttúrlega alltaf borið við elliglöpunum!“
Mest lesið Útför Gunnars Þórðarsonar Lífið Jóhanna Guðrún ólétt Lífið Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Lífið Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Lífið Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Lífið Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Lífið Heiður að endurvekja falda perlu Palla Tónlist Frægustu mágar landsins Lífið Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð Lífið „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Lífið samstarf Fleiri fréttir Ódysseifur halað inn milljarði dala og Lói nálgast tvo Ben Jones er látinn Sækir um sem kærasti með nýju húðflúri Hefja framleiðslu á framhaldsmynd um Michael Jackson Glæný stikla úr Hvar er draumurinn? Köngulóarmaðurinn slær sögulegt met Eftirlætis myndir Laufeyjar: „Mig dreymir um þetta augnablik“ Frumsýning: Íslensk stikla fyrir Um tímann og vatnið Gosling verður Skrattakollur Depp er Ebeneser Skröggur: „Gott að vera kominn aftur“ Lofar nýrri Ódysseifskviðu fyrir árslok Ali G snýr aftur Rýnt í stikluna: Smekkfull stikla af ofurhetjum Óskarsverðlaunahafinn Brenda Fricker látin Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Brjálaðar boltamömmur berjast Geislasverð Loga Geimgengils seldist á 470 milljónir Aldraður og moldaður Tom Cruise til bjargar jörðinni Bestu hlutverk Sams Neill: Andkristur, fornleifafræðingur og menn á barmi sturlunar Josh Grisetti látinn 44 ára að aldri Joanna Pettet er látin Pulp Fiction-stjarna heiðursgestur á RIFF Britney á stóra skjáinn Fyrsta mynd umdeildrar gervigreindarleikkonu í framleiðslu Skósveinarnir hafi ekki þjónað Hitler Danny Glover með Alzheimer Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Michael Byrne er látinn Sjá meira