Gakktu óhrædd inn í sumarið 14. apríl 2007 00:01 Næntís neon Kjóll sem vekur eftirtekt frá Christopher Kane fyrir sumar 2007
Nú þegar sólin fer vonandi að hækka á lofti er kominn tími til þess að kíkja á helstu tískustrauma komandi sumars. Það er óneitanlega hægt að segja að árstíðin verði með afbrigðum litaglöð og framúrstefnuleg. Hönnuðir eins og Hussein Chalayan og Nicolas Ghésquiere hafa boðað endurkomu geimaldar með málmi, plasti og glans. Níundi áratugurinn og „new rave“ lúkkið koma sterkt inn og áhrifin hafa meira að segja teygt sig til Bjarkar Guðmundsóttir og plötu hennar Volta, þar sem neon-litir eru í fyrirrúmi. Svart-hvítar rendur halda áfram velli og sáust meðal annars hjá Giles Deacon, Ungaro og Sonia Rykiel. Mynstur eru reyndar afar áberandi, hvort sem það eru doppur og dílar, rómantísk blómamynstur eða villt frumskógarmótíf. Hvítt er góður kostur fyrir þær sem kjósa að halda sig frá litagleðinni og margir hönnuðir voru með dásamlegar útgáfur af litla hvíta kjólnum í sumar. Draumkennt chiffon-efni og 18. aldar rómantík sveif eftir tískupöllum Louis Vuitton og húðlitur er annar fágaður litakostur í sumar. Með hækkandi sól kemur svo auðvitað aukin útivera og sport-stíllinn tröllreið sumar-og vorlínum margra hönnuða, þar á meðal Jean Paul Gaultier og DKNY. Hvað varðar fylgihluti eru veski og töskur úr lakki eða málmi áfram í tísku ásamt himinháum fylltum hælaskóm. Höfuðfatnaður eins og klútar, breið sixtís-bönd og jafnvel túrbanar eins og hjá Prada verða það alheitasta. Munum bara að það er ekkert eins hallærislegt og að skjálfa úr kulda í hinu íslenska sumri og því vert að halda fast í svörtu sokkabuxurnar og hlýjar kápur.. að minnsta kosti fram i júlí ! - annabjornsson@frettabladid.issilfruð framtíðarsýn Hvítur og silfurlitur kjóll frá Chanel. vosumar 2007.María antoinette Louis Vuitton var með rómantíkina í fyrirrúmi fyrir sumarið.Sixtísrendur Áhrifa Edie Sedgwick gætir enn á tískuna. Þessi sumarlegi kjóll er frá Sonia Rykiel.Sportlegt og svalt Framúrstefnulegur sportfatnaður frá Jean-Paul Gaultier fyrir sumar 2007Með túrban í sólina Prada kom túrbaninum aftur á tískukortið í sumar. Eflaust þægilegt fyrir strandfríin í sumar.Skærbleikt Stella McCartney með útfærslu á neonlitum í fallega sniðnum sumarkjól.Rómantískur Fölbleikur kjóll úr chiffoni frá GK, Reykjavik.Litli hvíti kjóllinn Þessi stutti einfaldi kjóll verður ómissandi í sumar. Frá GK, Reykjavik.
Mest lesið „Hæ ástin mín, Nýtt í hverjum mánuði á fimmtudaginn, ertu laus?“ Áskorun Glódís Perla og Kristófer gengu í það heilaga Lífið Heldur ótrauð áfram þrátt fyrir að ná ekki milljónamarkmiðinu Lífið Bæði sorg og gleði að ala upp fimm börn með sérþarfir Lífið Brigitte Bardot er látin Lífið Vinsælustu myndböndin á Vísi á árinu Lífið Ásgeir Kolbeins furðu lostinn yfir steini í jólapakkanum Lífið Frægir fjölguðu sér árið 2025 Lífið Þakkar Trump í ólettutilkynningunni Lífið Sjálfur jólasveinninn skotspónn samsæriskenninga Lífið