Fortíðarþrái 10. apríl 2007 05:30 Það er er svo skrítið hvað þetta unga fólk í dag slæst mikið. Í gamladaga var ástandið ekki svona. Þá var ekki sparkað í hausa á öðrum, ó seisei nei. Þá var bara talað um að heilsast að sjómannasið og menn slógust í gamni við utanbæjarmenn. Þetta sagði vitur maður mér eitt sinn þegar ég starfaði sem óforskömmuð afgreiðslustúlka í hamborgarabúllu út á landi. það er svo undarlegt að þú skulir ekki vera dökkhærð miðað við hvað þú ert komin af laglegum fransmönnum af Skaganum. Þetta sagði lífsreynd kona mér rétt eftir að hún hefur hneykslast á öllum þessum útlendingum sem hún segir flæða yfir landið. það er skrítið að fólk haldi að við séum rasistar bara vegna þess að við viljum að „óheftur innfluttningur [sic] vinnuafls sé hagstjórnarmál ekki tilfinningamál“. Þetta skrifa stjórnmálamenn sem vilja verja strendur landsins fyrir útlendingum sem kynnu að smita landann af berklum og menga íslenska tungu. Það hvarflar að manni að sannleikskorn sé að finna í málflutningi þeirra en á fáum öðrum stöðum verður maður jafn greinilega var við hnignun móðurmálsins. Sömu menn virðast ekki vita að þeir geta sótt sér betur skrifaðan áróður gegn hinu óþekkta í ræðum stjórnmálamanna sem voru við völd á hernámsárunum. Það er svo skrítið að Íslendingar hafa í gegnum tíðina sýnt 6. ættlið Íslendinga í Vesturheimi meiri áhuga en nýjum Íslendingum. Við rennum eftir greinum fornra ættartrjáa, dáumst að því hvað Íslendingar í vestanhafs hafa verið duglegir að sýna íslenskri menningu áhuga en þekkjum lítið til uppruna nýrra Íslendinga í nágrenni okkar. Það er svo skrítið að stundum langar mann ekki til að hafa skoðanir eftir að sjálfskipaðir spekingar hafa deilt reynslu sinni af óumbeðinni góðmennsku. Þá kýs maður frekar að ræða um veðrið við afa sinn. Sá hinn sami segir það skrítið að í bernsku hans hafi veðurguðirnir verið mildari en nú á tímum. Nú sé bara svikasól á lofti og sumarvetur gerir æ oftar vart við sig. Jafnvel þótt menn segi tíð hlýnandi loftslags og heimsenda gengna í garð. Svo hellum við upp á kaffi og dæsum yfir heimsósómanum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bakþankar Mest lesið Barnamorðingjar eru velkomnir til Íslands Björn B. Björnsson Skoðun Obb obb obb Bogi minn 698.500 kr. fyrir að breyta einum litlum flugmiða Kristján Logason Skoðun Sigurjón Þórðarson og sannleikurinn Sigurgeir B. Kristgeirsson Skoðun Beðið eftir aðgerð þar sem kvóti er búinn Dóra Lind Pálmarsdóttir Skoðun Stór-Ísrael Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Mannréttindi þarf ekki að endurhugsa — þau þarf að virða Alma Ýr Ingólfsdóttir Skoðun Sami hræðsluáróðurinn: EES á Íslandi 1993 og ESB í Svíþjóð 1994 Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Hvalveiðar sem vopn til að berjast gegn aðild að ESB Micah Garen Skoðun Stjórnsýsla Íslands er ekki „allt of lítil“, hún er „lítil og skilvirk“ Halldór Jörgen Olesen Skoðun Hvað varð um planið? Pétur Óskarsson Skoðun
Stjórnsýsla Íslands er ekki „allt of lítil“, hún er „lítil og skilvirk“ Halldór Jörgen Olesen Skoðun
Stjórnsýsla Íslands er ekki „allt of lítil“, hún er „lítil og skilvirk“ Halldór Jörgen Olesen Skoðun