Ítalskur saksóknari kærir bandarískan hermann 20. júní 2006 13:29
Ítalskur saksóknari hefur að sögn þarlendra fjölmiðla ákveðið að ákæra bandarískan hermann fyrir að hafa myrt ítalskan leyniþjónustumann við varðstöð í Írak í fyrra. Líklegt er að réttað verði í málinu að honum fjarstöddum og hann kærður fyrir morð og tvö morðtilræði.Leyniþjónustumaðurinn, Nicola Calipari, tryggði lausn ítölsku blaðakonunar Giuliönu Sgrena sem hafði verið rænt í Írak. Þau voru á leið í bíl á flugvöllinn í Bagdad þegar skotið var á þau við varðstöðina. Sgrena og ökumaður særðust. Erminio Amelio, saksóknari, hefur ekki staðfest fréttir ítalskra miðla í dag um að hann ætli að kæra hermanninn. Hann sagði þó í síðustu viku að rannsókn væri lokið og eftir væri að ákveða hvort hermaðurinn, Mario Lozano, yrði kærður.Lögfræðingur Lozano, sem yfirvöld í Ítalíu hafa skipað honum, segir líklegt að réttað verði yfir skjólstæðing hans að honum fjarstöddum en hann verði kærður fyrir morð og morðtilræði. Bandarísk og ítölsk yfirvöld hafa sent frá sér tvær, ólíkar skýrslur um málið þar sem ekki tókst samkomulag um atburðalýsingu. Bandarísk yfirvöld segja að bifreiðinni hafi verið ekið hratt að varðstöðinni og hermenn óttast að andspyrnumenn væru þar á ferð. Ítölsk yfirvöld segja að bílnum hafi verið ekið á eðlilegum hraða og hermennirnir hafi ekki látið vita af því að þau nálguðust eftirlitsstöð.
Erlent Mest lesið Í deilum við nágrannann vegna trjáa Erlent Tvær þyrlur sækja fjóra eftir alvarlegan árekstur á Fagurhólsmýri Innlent Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Innlent Gróður farinn að grænka fyrir norðan Innlent Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Innlent Mesti snjór í New York í fjögur ár Erlent „Þetta er ansi flókið, en þó ekki svo flókið“ Erlent Fleiri fréttir Minnst einn látinn eftir að tvær þyrlur rákust saman í loftinu Trump telur friðarsamkomulag mögulegt innan nokkurra vikna „Þetta er ansi flókið, en þó ekki svo flókið“ Átti gott samtal við Pútín Skildu farþega eftir í fyrri ferð og strönduðu í annarri Í deilum við nágrannann vegna trjáa Mesti snjór í New York í fjögur ár Þrír létust í óveðrinu Ræðir uppfærða friðaráætlun við Trump í dag Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Fjórir göngumenn látnir eftir snjóflóð í Grikklandi Brenndu rangt lík Leita í rústum íbúðahúsa Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Semja aftur um vopnahlé Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Mun funda með Trump „í náinni framtíð“ Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Sjá meira