Ævintýraveröld ófétanna 20. júní 2006 15:00
Ævintýraveröld ófétanna á Jónsmessuhátíð Listasumars á Akureyri Agnarlitlu ófétin eiga heima í blómum og fljúga á fiðrildum. Í heimi þeirra er hið smáa risavaxið og allt er fullt af undrum og óvæntum uppákomum. Stilkar blómanna eru eins og trjábolir og grasþykknið er eins og þéttur frumskógur. Norður á Akureyri er svokallaður Kjarnaskógur sem breytast mun í Ófétaskóg á Jónsmessuhátíð 23. júní næstkomandi. Þá verður Listasumar á Akureyri 2006 sett með pompi og prakt og fjölbreyttir listviðburðir og karnívalsstemming verða í skóginum. Sérstakt þema hátíðarinnar eru ófétin úr ævintýraveröld sem Rúna K. Tetzschner hefur skapað en þau munu skjóta upp kolli í ýmsum gervum og listformum. Ófétin munu syngja, dansa, skemmta sér og síðast en ekki síst: Sýna krækiklærnar! Sá efniviður sem Rúna hefur lagt til með sköpun ævintýraheims ófétanna er kjörinn til að fá börn til að skapa eitthvað sjálf og dagana 20. til 23. júní stendur Listasumar á Akureyri fyrir ófétalistasmiðjum fyrir börn á aldrinum 4rra til 12 ára. Í listasmiðjunum mun bæði fara fram myndlistarsköpun og tónlistarsköpun undir stjórn Rúnu, Óskar Óskarsdóttur og Núma Björnssonar og koma börnin fram með listaverk sín á Jónsmessunótt í Kjarnaskógi 23. júní. Daginn eftir eða 24. júní kl. 15:00 opnar sýning í Deiglunni á frummyndum Rúnu af ævintýraheimi ófétanna og stendur hún til 8. júní.
Lífið Menning Mest lesið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Notch setur glæsihúsið á sölu Leikjavísir Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Ofurfyrirsæta blæs nýju lífi í Life-tímaritið Menning Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Gengst við dulnefninu en vill samt ekki kannast við það Menning Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Tónlist Fleiri fréttir Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Sjá meira