Árviss viðburður hér eftir 12. desember 2006 17:00 Jakob Frímann vill efla veg íslenskrar tónlistar með því að festa Dag íslenskrar tónlistar í sessi.
Dagur íslenskrar tónlistar verður haldinn hátíðlegur í dag. Dagurinn hefur verið haldinn nokkrum sinnum á undanförnum árum en nú stendur til að festa einn dag á ári í sessi. Til þess að ræða framtíð þessa dags og efla samstöðuna í kringum hann verður haldinn hádegisverðarfundur á Hótel Borg í dag. „Við viljum efla veg íslenskrar tónlistar og höfum hug á því að gera þennan dag að árvissum viðburði frá og með 2007," segir Jakob Frímann Magnússon hjá Samtóni, samtökum rétthafa tónlistar. „Það er líka verið að koma á ákveðnu samráði á milli þeirra afla sem starfa á vettvangi íslenskrar tónlistar. Við lítum á að það fari saman að mörgu leyti hagsmunir, ekki bara höfunda, flytjenda, útgefenda, rétthafa tónlistar og tónlistarunnenda, heldur einnig þeirra sem fást við það að fjalla um tónlist og byggja megindagskrárefni sitt á tónlist," segir Jakob og nefnir þátt hins opinbera einnig til sögunnar. Flutningur á íslenskri tónlist verður í fyrirrúmi hjá útvarpsstöðvum landsins í dag og vill Jakob sérstaklega vekja athygli á útvarpsstöðinni Kananum sem spili eingöngu íslenska tónlist alla daga. Bætir hann því við að hálft þriðja þúsund íslenskra laga hafi verið gefið út á árinu og yfir tvö hundruð íslenskar plötur gefnar út. „Það er útilokað að hinar íslensku útvarpsstöðvarnar, sem eru flestar háðar auglýsingamarkaði, geti sinnt svo fjölbreytilegri flóru sem er ekki öll að alþýðuskapi og er sértæk í mörgum tilfellum." Á fundinum í dag verður m.a. rætt um heppilega tímasetningu fyrir Dag íslenskrar tónlistar og um umgjörð dagsins í framtíðinni með hliðsjón að því hvernig hefur tekist til með Dag íslenskrar tungu. Jafnframt verða ræddar hugmyndir um íslenskt tónlistarsumar, sem eitt sinn var mikil stoð og stytta íslenskrar tónlistarútgáfu og -flutnings. „Það er verk að vinna á vettvangi lifandi tónlistar sem hefur átt undir högg að sækja, ekki síst utan borgarmarkanna," segir Jakob, sem býst við því að Dagur íslenskrar tónlistar verði framvegis haldinn hátíðlegur á haustin þegar útgáfan fyrir jólin er að hefjast. Ragnheiður Gröndal. Söngkonan unga gefur út plötu fyrir jólin og lög af henni fá eflaust að hljóma á íslenskum útvarpsstöðvum í dag, á Degi íslenskrar tónlistar. .
Mest lesið Dóttir Tommy Lee Jones fannst látin Lífið Íslendingar tjá sig um skaupið: „Versta skaup ever“ eða það besta í manna minnum? Lífið Fékk útskýringu frá ChatGPT eftir áratugaleit að svörum Lífið Þetta fengu ráðherrarnir gefins Lífið Opnar sig um augnlokaaðgerðina Lífið Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Tónlist Þórdís Elva bað poppstjörnunnar Lífið Króli og Birta eignuðust lítinn prins Lífið Var orðið að spurningu um líf og dauða Lífið Maður geti þurft að díla við „konu sem er á túr“ og í vondu skapi Lífið Fleiri fréttir Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Heitustu lögin á FM árið 2025 Afþakka miðann til Vínar vinni þeir undankeppnina Prikið vekur athygli út fyrir landsteinana Abba skilar 350 milljörðum í kassann Ísraelar fá að vera með í Eurovision Halda aðra tónleika á Íslandi fyrir þá sem misstu af Allt alltaf alls staðar í allra besta lagi Miley Cyrus trúlofuð Þau þykja skara fram úr í íslenskri tónlist Þau hlutu verðlaun Dags íslenskrar tónlistar Bein útsending: Hver hlýtur viðurkenningu á Degi íslenskrar tónlistar? Sjá meira