Ætlar kannski að segja af sér 6. nóvember 2006 05:30 Al-Hilali segist ætla að segja af sér ef þriggja manna nefnd kemst að því að hann hafi hvatt til nauðgana. MYND/AP
Sheik Taj Aldin Al-Hilali, múslimaklerkurinn í Ástralíu sem vakti hörð viðbrögð í september þegar hann sagði slæðulausar konur vera eins og óvarið kjöt, sagðist á föstudag ætla að segja af sér ef óháð nefnd kemst að þeirri niðurstöðu að með þessum ummælum hafi hann verið að hvetja til nauðgana. Al-Hilali hefur verið æðsti leiðtogi múslima í Ástralíu frá árinu 1989. Síðastliðinn mánudag ákvað hann að taka sér frí um óákveðinn tíma eftir að hann féll í yfirlið í Lakemba-moskunni í Sydney. Hann sneri þó aftur í moskuna í gær, vopnaður blómum sem hann gaf bæði fjölmiðlum og lögreglunni, og var fagnað þar af hundruð stuðningsmanna sinna sem mættir voru til hádegisbæna. Einnig sendi hann frá sér yfirlýsingu þar sem hann hvatti til þess að þriggja manna nefnd, skipuð einum dómara og tveimur lögmönnum, yrði fengin til að rannsaka ummælin umdeildu frá í september. „Hver sá,“ sagði í yfirlýsingunni, “sem réttlætir nauðgunarglæp eða hvetur til slíks undir hvaða kringumstæðum sem er, eða hver sá sem vanvirðir ástralskar konur vegna klæðnaðar þeirra, er ekkert annað en fávís, heimskur og truflaður og á ekki skilið að gegna neinni ábyrgðarstöðu.“
Erlent Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Sjá meira