Gefa sér lengri íhugunarfrest 16. júní 2006 04:00 Schüssel og Prodi Wolfgang Schüssel Austurríkiskanslari heilsar ítalska forsætisráðherranum Romano Prodi í Vínarborg á miðvikudag, þar sem hann kom við á leiðinni á leiðtogafundinn í Brussel. nordicphotos/afp MYND/nordicphotos/afp
Eins árs "íhugunarhlé" sem leiðtogar Evrópusambandsins gáfu sér eftir að franskir og hollenskir kjósendur höfnuðu stjórnarskrársáttmálanum svonefnda í þjóðaratkvæðagreiðslum í fyrra, er nú formlega að baki. En á leiðtogafundi sem hófst í Brussel í gær munu ríkisstjórnaleiðtogar aðildarríkjanna 25 ákveða að gefa sér eins árs frest til viðbótar til að íhuga hvert framhaldið skuli verða. Wolfgang Schüssel, kanslari Austurríkis sem nú gegnir formennskunni í ESB, lét hafa eftir sér að ætlunin væri að ákveða annars vegar að freista þess að efla samstarfið innan sambandsins á tilteknum sviðum á grundvelli gildandi sáttmála, en halda jafnframt áfram umræðu um stjórnarskrármálið. Gegnsæi og nálægð við borgarana verða að sögn kanslarans höfð að leiðarljósi í þessari umræðu sem fram undan er. Annað helsta umræðuefni leiðtoganna mun snerta frekari stækkun sambandsins, einkum þær áhyggjur sem margir íbúa eldri aðildarríkjanna virðast hafa af þeirri þróun. "Með þessu vonumst við til að sýna að við erum að hlusta á hvað borgararnir eru að segja okkur og að við skirrumst ekki við að taka á þeim málum sem mest á þeim brenna," sagði kanslarinn.
Erlent Mest lesið Stríð Trumps við fjölmiðla teygir sig yfir Atlantshafið Erlent Þorleifur Kamban er látinn Innlent Hellti bjór yfir slasaðan hjólreiðamann sem lá í götunni Innlent Veðmálafyrirtækin geti eflt íþróttafélög til muna Innlent Lætur ráðherra fjúka vegna umfangsmikils spillingarmáls Erlent Árelía kveður borgarpólitíkina Innlent Loftgæði verði áfram slæm Innlent „Meiddist og varð mjög hræddur um líf sitt“ Innlent Framlag Íslands til Parísarsamningsins óháð ESB-markmiði Innlent Nú eru kettir og hundar leyfðir í fjölbýli Innlent Fleiri fréttir Lætur ráðherra fjúka vegna umfangsmikils spillingarmáls Alríki fjármagnað út janúar 2026 Stríð Trumps við fjölmiðla teygir sig yfir Atlantshafið Vörpuðu milljörðum erfðabreyttra fræja yfir akra Afganistan Sagði Trump hafa varið klukkustundum með fórnarlambi sínu Bruni jarðefna nær hámarki fyrir 2030 standi menn við orð sín Stærsta flugmóðurskip heims komið til Karíbahafsins Bandamenn Starmer óttast hallarbyltingu Tuttugu fórust þegar tyrknesk herflugvél hrapaði Loftmengun í Delí langt yfir öryggisviðmiðum Efnaðir Ítalir sagðir hafa myrt fólk í Sarajevo sér til ánægju Kom til átaka á mótmælum vegna COP30 Hútar hættir árásum á skip og Ísrael Hafa uppgötvað djöflabýflugu Krefjast tvö þúsund ára fangelsisdóms yfir borgarstjóranum Smallville-leikkona opnar sig í fyrsta sinn um aðkomu sína að kynlífssértrúarsöfnuðinum Grænlenskir góðmálmar og seinagangur bankanna Sprengdi sig í loft upp við dómshús Nýtt spillingarmál skekur Úkraínu Kínverjar menga mest en standa sig samt best Ákváðu að vera opin gagnvart börnunum varðandi veikindin „Við viljum auðvitað fá fólkið okkar aftur til Úkraínu“ Hótar að kæra BBC fyrir einn milljarð dala „Við viljum auðvitað fá fólkið okkar aftur til Úkraínu“ Reynt sé að grafa undan BBC sem þó hafi gert mistök Demókratar reiðir hver öðrum en aðallega reiðir Schumer Ætla ekki að endurskoða rétt samkynhneigðra til að giftast Sarkozy laus úr fangelsi Lagði til að forsætisráðherrann yrði afhöfðaður Sögð ætla að leita á náðir Trumps Sjá meira