Al-Qaida ætlar að ná völdum 17. júlí 2005 00:01
Að minnsta kosti 70 létust og um 160 særðust í sjálfsmorðssprengingu í Írak í gær. Árásum hefur fjölgað mjög í landinu að undanförnu og hafa hryðjuverkasamtökin Al-Qaida sagt að þeim linni ekki fyrr en samtökin ná völdum í landinu. Árásarmaðurinn sprengdi sig í loft upp við bensínstöð nærri mosku sjíta múslima í borginni Mussayib, 60 kílómetra suður af Bagdad, höfuðborg Íraks. Þetta er ein mannskæðasta árás sem gerð hefur verið í landinu frá því Bandaríkjamenn réðust inn fyrir þremur árum. Hryðjuverkasamtökin Al-Qaida hafa lýst því yfir að árásum muni fjölga enn frekar á næstunni, markmiðið sé að komast til valda og Bandaríkjamönnum frá. Árásum uppreisnarmanna hefur fjölgað mjög að undanförnu. Í dag hafa yfir tuttugu manns látist í fjórum sjálfsmorðssprengingum í Bagdad, þar á meðal sex lögreglumenn. Flestar árásirnar voru gerðar nálægt lögreglustöðvum í borginni en Al-Qaida hefur lýst því yfir að allir þeir sem hjálpi Bandaríkjamönnum á einhvern hátt séu skotmörk samtakanna. Hingað til hafa moskur að mestu verið látnar í friði en breyting virðist hafa orðið þar á og lítur út fyrir að enginn staður sé lengur heilagur eða óhultur.
Erlent Fréttir Írak Mest lesið Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Erlent Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Erlent Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Seinfeld og Friends-leikari látinn Lífið Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Fleiri fréttir Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Níu skotnir til bana á krá Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Sjá meira