Máttur kvenna kemur sér vel 11. maí 2005 00:01
Nýlega luku 42 konur rekstrarnámi í Mætti kvenna við Viðskiptaháskólann á Bifröst og er það annar útskriftarhópurinn af slíku námskeiði. Námið er sett upp fyrir konur í atvinnurekstri á landsbyggðinni og styrkt af Byggðastofnun. Af fjöldanum sem sækir það má ráða að þörfin sé mikil og krafturinn eftir því. Að sögn Auðbjargar Agnesar Gunnarsdóttur, viðskiptafræðings sem heldur utanum símenntunarmálin á Bifröst er námskeiðið að miklu leyti byggt á fjarnámi. Í upphafi og lok námstímans hittast þó konurnar á Bifröst og hafa þar vinnuhelgar. Bókfærsla, tölvutækni, markaðs og sölumál, fjármál og vaxtaútreikningar ásamt áætlanagerð eru meðal námsgreina. "Áherslan er á aðgengilegt nám og hagnýtt," segir Agnes. "Konurnar eru margar í vinnu og með heimili og börn en þær geta farið inn á vefinn, hlustað á fyrirlestrana og unnið verkefnin þegar þeim hentar. Þetta hefur mælst vel fyrir."
Nám Mest lesið Eva Laufey og Haraldur stækka við sig á Skaganum Lífið „Dýrmætt að fá að hafa þetta svona persónulegt“ Lífið Aldraður boltasækir steig síðasta dansinn Lífið Nýr Rambo fundinn Bíó og sjónvarp Eigendaskipti á Kaffi Laugalæk: Breyta til en lofa sömu stemningu Lífið Tekinn fullur, missti fjölskylduna og fékk krabbamein á sama árinu Lífið Tilkynnti tólftu plötuna í hlaðvarpi kærastans Tónlist Stöðugt á ferð og flugi með sterkari skrokk Lífið samstarf Ræðst framtíð grínmyndarinnar hér? Aumkunarverð endurvinnsla og ferskt framhald Gagnrýni Suðrænn og ferskur þeytingur að hætti Jönu Lífið Fleiri fréttir Kolfinna leikstýrir kærastanum í annað sinn Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira