Sumarferð á slóðir Leifs heppna 10. mars 2005 00:01
Vestfjarðaleið hefur boðið upp á ferð til St. John á hverju hausti og vegna eftirspurnar hefur einni sumarferð verið bætt við. Flogið er í beinu flugi til St. John á fimmtudagskvöldið 11. ágúst og flogið til baka föstudagskvöldið 19. ágúst, en flugið tekur um rúmar þrjár stundir. Ýmislegt verður í boði fyrir ferðalangana í St. John og má þar nefna skipulagða sex daga rútuferð með leiðsögn á víkingaslóðir þar sem verður farið í þjóðgarðinn L’Anse aux Meadows þar sem Leifur heppni er talinn hafa komið þegar hann fann Ameríku árið 1000. Fyrir gönguáhugafólk verður í boði gönguferð í þjóðgarðinum Grose Morne á vesturströnd Nýfundnalands sem er sannkallað meistaraverk frá náttúrunnar hendi. Þarna er einnig kjörið að stunda golf, göngur, veiði og kajaksiglingar svo eitthvað sé nefnt. Skógræktarfélag Íslands mun jafnframt nýta sér flugið og gangast fyrir kynnisferð um Nýfundnaland þar sem lögð er áhersla á að skoða fjölbreytta náttúru þessa áhugaverða lands, þjóðgarða, skóga og skógrækt. Sköpuð eru tengsl við heimamenn sem sjá um leiðsögn en íslenskir náttúrufræðingar eru fararstjórar. Frekari upplýsingar er að finna á vefsíðunni vesttravel.is.
Ferðalög Mest lesið Tekinn fullur, missti fjölskylduna og fékk krabbamein á sama árinu Lífið Ræðst framtíð grínmyndarinnar hér? Aumkunarverð endurvinnsla og ferskt framhald Gagnrýni Mugison gekk í það heilaga við litla útiathöfn Lífið „Við ætlum að hlaupa fyrir hana Birtu okkar“ Lífið Stjörnulífið: Ástin, glimmer og ofurkroppar Lífið Ungt fólk setur vínbændur í erfiða stöðu Matur Fyrstu skrefin tekin á sama stað og símtalið um fæðinguna barst Lífið Superstore-leikari látinn Lífið Leifur Andri og Hugrún trúlofuð Lífið Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Lífið Fleiri fréttir Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira