Aganefnd HSÍ er algjörlega vanhæf 17. febrúar 2005 00:01
Með dómi sínum í máli Rolands Vals Eradze sannaði aganefnd HSÍ að hún er algjörlega vanhæf og engan veginn fær um að sinna starfi sínu. Karl V. Jóhannsson, formaður nefndarinnar, játar það í raun sjálfur í viðtali við Fréttablaðið í gær. "Eftir á að hyggja fórum við of mjúkum höndum um Roland. Við komumst hins vegar að þessari niðurstöðu og henni verður ekki breytt," sagði Karl meðal annars í viðtalinu. Úrskurður aganefndarinnar er skandall og eftir frammistöðu sína í tveim stórum málum í vetur hefur aganefnd HSÍ hefur misst allan trúverðugleika. Sá trúverðugleiki verður ekki endurheimtur nema þeir ágætu menn sem sitja í nefndinni standi upp og segi af sér. Það gerist vonandi sem fyrst því þessum herramönnum er ekki stætt á að vera í nefndinni lengur. Það er ekki eingöngu aganefndin sem er vanhæf heldur er reglugerðin sem hún þarf að fara eftir meingölluð. Handboltaáhugamönnum hefur verið tíðrætt um að ef Roland hefði fengið hinn svokallaða kross hefði hann fengið miklu lengra bann. Það eru skiptar skoðanir um það. Krossinn, eða brottvísun, gefur átta refsistig en rautt spjald fimm refsistig. Leikmenn fá eins leiks bann hvort sem þeir fá fimm eða átta refsistig. Það er ekki fyrr en leikmenn komast í tíu refsistig sem þeir fá þriggja leikja bann. Þess vegna varð aganefndin að beita þessu tímabundna banni. Þvílíkt rugl. Þetta refsistigakerfi gengur ekki upp og er vont aðstoðartæki fyrir aganefndina sem gerir hennar starf í raun erfiðara. "Þetta er auðvitað grafalvarlegt mál en við dæmdum algjörlega út frá refsistigaskalanum," sagði Karl í sama viðtali við Fréttablaðið. Þetta kerfi er tóm steypa og það er kominn tími til að kasta því fyrir róða og taka upp nútímalegra kerfi sem auðveldar störf aganefndar. Betra væri að hafa almennar reglur fyrir minni sakir eins og rauð spjöld fyrir þrjár tveggja mínútna brottvísanir en svo væri tekið sérstaklega á hverju máli þar sem bein brottvísun á sér stað. Algjörlega óháð einhverjum refsistigum. Væri hægt að styðjast við álíka viðmið og aganefndin notar í dag þegar ákveða á lengd leikbanna. Í stað þess að fara eftir flóknum refsistigaskala væri hægt að flokka brot leikmanna eftir grófleika og brot í ákveðnum flokkum geta svo numið allt að ákveðið löngu leikbanni. Skýrar línur og engar flækjur sem gera vinnu aganefndar erfiðari en hún er fyrir. Annað atriði sem nauðsynlega þarf að laga er sú staðreynd að ekki er hægt að áfrýja dómum sem eru styttri en eitt ár. Það er lítil sanngirni í þeirri reglu því um síðir geta komið fram sönnunargögn sem varpað geta nýju ljósi á umdeild mál. Við höfum eitt skýrt dæmi um það síðan í vetur. Það er víða pottur brotinn í íslenskum handboltaheimi og forystumenn handknattleiksmála verða að bretta upp ermar og taka þessi mál föstum tökum á næsta ársþingi svo við getum verið laus við álíka uppákomur næsta vetur. henry@frettabladid.is
Íslenski handboltinn Mest lesið Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Fótbolti United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Enski boltinn Stoltur af stráknum en ætlar ekki að kaupa hann aftur Handbolti Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Fótbolti Goðsögn fallin frá Enski boltinn Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn „Ég elska peninga“ Sport Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Fleiri fréttir Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum Stoltur af stráknum en ætlar ekki að kaupa hann aftur Dagskráin í dag: Íslendingar spila jólabolta á Englandi Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Jólagleði í Garðinum Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum „Ég elska peninga“ Goðsögn fallin frá Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Kærður af knattspyrnusambandinu Dreymir enn um Evrópu: „Ekki tilbúin að borga það sama“ Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Síðasti dansinn hjá Kelce? Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Jólagjöf í Keflavík: Remy Martin snýr aftur Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Sjá meira