Rafræn kveðja og kortafé í styrk 23. desember 2004 00:01
Fé sem ætlað var til að prenta og senda út jólakort til starfsmanna Akureyrarbæjar hefur verið gefið til styrktarfélaga. Er það gert í annað sinn. Jón Birgir Guðmundsson, verkefnastjóri bæjarráðs, segir átján hundruð starfsmenn bæjarfélagsins falla það vel. Þeir hafi nær allir aðgang að netinu og jólakveðjur séu því sendar í tölvupósti. Styrkinn hlutu Hetjurnar, félag aðstandenda langveikra barna á Norðurlandi, og Aflið, systursamtök Stígamóta á Akureyri, 75 þúsund krónur hvort.
Innlent Jól Menning Mest lesið Alltaf betra en í fyrra Jól Borgardætur - Þorláksmessa Jól Hlustar á jólalög allt árið Jól Jólakúlur Jólin Englahárið á jólatrénu Jól Spáð er hvítum jólum fyrir norðan og vestan Jól Aðventukertin Jól Svona gerirðu graflax Jól Kveikt á trénu í Smáralind Jól Jólalag dagsins: Gleði og friðarjól með Pálma Gunnars Jól