Nótt hinna röngu vísbendinga 3. nóvember 2004 00:01
Nótt hinna röngu vísbendinga væri réttnefni á kosninganóttinni sem nú er að baki. Sjaldan eða aldrei hafa álitsgjafar og sérfræðingar oftúlkað og rangtúlkað þær vísbendingar sem þeir hafa haft til að vinna úr jafn mikið. Fyrsta vísbendingin voru langar raðir við kjörstaði um það leyti sem átti að loka þeim. Sérfræðingar sjónvarpsstöðvanna óttuðust vandræði en engar fregnir hafa borist af neinu slíku heldur virðist sem þeir sem voru mættir tímanlega í röð hafi fengið að kjósa. Metkjörsókn var og allt gekk meira og minna vel. Næsta vísbendingin var sagan: Mikil kjörsókn, hátt hlutfall nýskráðra, minnihlutahópar duglegir við að kjósa. Sagan sagði að allt þetta þýddi að demókratar væru í sókn - en margt hefur breyst hér vestra frá því haustið 2001 og sagan reyndist ekki gefa neinar vísbendingar um hvað var á seyði. Þriðja vísbendingin voru fyrstu tölur úr útgönguspám sem fjölmiðlar hér vitnuðu þó ekki beint til. Álitsgjafarnir voru þó greinilega með þær á hreinu og útskýrðu hvers vegna Kerry væri í stórsókn. Raunveruleikinn kom óneitanlega flatt upp á þá sem hafa atvinnu sína af því að spá í spilin, kanna og útskýra. George Bush var með forskot á John Kerry nánast frá upphafi. Tölur úr hverju ríkinu á fætur öðru sýndu að forsetinn átti mikið bakland og að sérfræðingahersveitir höfðu ekki unnið heimavinnuna sína nægilega vel.
Erlent Forsetakosningar í Bandaríkjunum Fréttir Mest lesið Tilfærslan feli í sér ábyrgðaryfirlýsingu Innlent Mögulega ellefu milljarðar í boði en áhugi ráðherra furðulega lítill Innlent „Kostnaður við íþróttaiðkun barna er orðinn gríðarlegur“ Innlent Hægt verði að aka yfir brúna næsta sumar Innlent Kom til átaka á mótmælum vegna COP30 Erlent Flokkur Ingu tapaði fjörutíu milljónum Innlent Símar í grunnskólum og brottfararstöðvar á herðum nefnda Innlent Willum íhugar formannsframboð Innlent Nýtt fyrirtæki í Grindavík með 24 starfsmenn Innlent Áætlanir Bláa lónsins varði alla heimsbyggðina Innlent Fleiri fréttir Kom til átaka á mótmælum vegna COP30 Hútar hættir árásum á skip og Ísrael Hafa uppgötvað djöflabýflugu Krefjast tvö þúsund ára fangelsisdóms yfir borgarstjóranum Smallville-leikkona opnar sig í fyrsta sinn um aðkomu sína að kynlífssértrúarsöfnuðinum Grænlenskir góðmálmar og seinagangur bankanna Sprengdi sig í loft upp við dómshús Nýtt spillingarmál skekur Úkraínu Kínverjar menga mest en standa sig samt best Ákváðu að vera opin gagnvart börnunum varðandi veikindin „Við viljum auðvitað fá fólkið okkar aftur til Úkraínu“ Hótar að kæra BBC fyrir einn milljarð dala „Við viljum auðvitað fá fólkið okkar aftur til Úkraínu“ Reynt sé að grafa undan BBC sem þó hafi gert mistök Demókratar reiðir hver öðrum en aðallega reiðir Schumer Ætla ekki að endurskoða rétt samkynhneigðra til að giftast Sarkozy laus úr fangelsi Lagði til að forsætisráðherrann yrði afhöfðaður Sögð ætla að leita á náðir Trumps Skaut hreingerningakonu sem fór húsavillt Mótmæli gegn loftmengun í Nýju-Delí: „Ég sakna þess að anda“ Trump náðar Giuliani og aðra tengda kosningasamsærinu í Georgíu Frumvarp um fjármögnun alríkisins samþykkt í öldungadeildinni Flugvallarþorp gæti öðlast framhaldslíf Forstöðumaður BBC segir af sér vegna misvísandi umfjöllunar Saka Rússa um að ógna kjarnorkuöryggi í Evrópu Bretlandsher aðstoðar Belga vegna drónaflugs Nærri milljón rýmir vegna ofurfellibyls Þrír látnir í risaöldum á Tenerife Gestir Bylgjunnar fá að synda undir þessu þaki Sjá meira