Kettinum stolið 19. júlí 2004 00:01 Smári Jósepsson segir undarlega sögu sem hann hleraði á kaffihúsi Það var fyrir einhverju síðan sem að ég sat í mestu makindum, las blöðin og svolgraði í mig kaffi á ónefndum stað niðri í miðbæ Reykjavíkur. Á næsta borði við mig sátu ungir menn og skeggræddu málin. Ég komst ekki hjá því að heyra einn þeirra segja frá raunum sínum, enda var kauði svekktur með eindæmum og há raust hans fór vart framhjá viðstöddum. Ég laumaðist til að punkta hjá mér helstu atriði sögunnar enda ekki á hverjum degi sem maður heyrir frá eins sérstæðum atburði sem þessum.Maðurinn hafði eytt hárri fjárhæð í persa- og skógarkattarblöndu fyrir nokkrum árum síðan. Hafði hann komið kisa fyrir í hýsingu norður í landi í þeirri von um að finna öfluga læðu með fjölgun í huga. Kattarástríða mannsins leyndi sér ekki og fylgdist ég fullur aðdáunar með gangi mála og hélt áfram að hripa niður það sem mér barst til eyrna.Kattarunnandinn hélt áfram með sögu sína, sagði að allt hafi leikið í lyndi, búið væri að finna kærustu handa högnanum og getnaður hefði verið á næsta leyti. Þá hafi, öllum að óvörum, kisi stungið af. Ætli hann hafi guggnað á pressunni, fundið sér kærustu að eigin vali? Dagarnir urðu að mánuðum en ekkert bólaði á litla félaganum. Skildi hann hafa orðið fyrir bíl, stokkið um borð í skip eða var hann fluttur eitthvert annað? Ég pantaði hvern kaffibollann á fætur öðrum og réð mér vart af spennu.Kom í ljós að litla demantinum hafði verið stolið, hann geltur og búið að eyrnamerkja hann nýjum eigenda. Það lá við að tár runnu niður kinnar sögumannsins, slíkt var svekkelsið yfir óhemjuganginum. Gat fólk virkilega vanvirt eignarétt annarra á svo grófan hátt? Félagar mannsins hughreystu hann og ráðlögðu honum jafnframt að kæra málið til lögreglunnar. Framferði af þessu tagi væri eitthvað sem enginn ætti að komast upp með. Sjálfur tók ég stefnuna heim á leið, uppþembdur af kaffidrykkju, með nýja sögu í farteskinu. "Félagarnir verða orðlausir er þeir heyra þessa," hugsaði ég með mér. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Stuð milli stríða Mest lesið Hver á þennan bústað? Já eða nei? Stefán Hrafn Jónsson Skoðun Halldór 27.06.2026 Halldór Þjóðin föst í Groundhog Day krónunnar Baldur Pétursson Skoðun Velferð þarf rými Þorvaldur Davíð Kristjánsson Skoðun How to ruin a university system with one law Colin Fisher Skoðun Valdatafl eða nauðsynlegt stopp á gölluðu frumvarpi? Jóhann Helgi Stefánsson Skoðun Farsæld barna: Ekkert annað en rómantísk saga á blaði Ingibjörg Einarsdóttir Skoðun Verður Ísland brothætt byggð? Sigurjón Þórðarson Skoðun Kæru landar – Eigum við að hafna samningi sem við höfum ekki séð? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Að semja við sjálfan sig Sigurjón Njarðarson Skoðun