 Vinna á auglýsingastofum er oftast nær dagvinna, en þó koma tímar þar sem vinnutarnir ná fram yfir dagvinnutímann og langt fram á kvöld. Byrjunarlaun eru frá 250 þúsundum en auglýsingateiknarar með víðtæka þekkingu og reynslu fá allt upp í 600 þúsund í mánaðarlaun. Stéttarfélag grafískra hönnuða er Félag grafískra teiknara sem er sameinað Félagi bókagerðarmanna. Atvinna Mest lesið „Við flytjum aldrei héðan“ Lífið Þau komust áfram í úrslit Eurovision Lífið Kosningavökur flokkanna: Hótel, veislusalir og einn leynistaður Lífið Stjörnufans hjá Birni á Edition Tónlist Oddvitaáskorunin: Iðulega kallaður Lúlli laukur Lífið Flosi Eiríks selur 300 milljón króna einbýlishús Lífið Aðalpæjur landsins komu saman Tíska og hönnun Oddvitaáskorunin: „Þoli ekki að ég sé ekki skurðlæknir“ Lífið Miðbæjarperla til sölu í litlu ævintýrahúsi Lífið Oddvitaáskorunin: Cheerios með sykri besti morgunmaturinn Lífið Fleiri fréttir Tíminn stóð í stað í bílveltunni Sjóðheitir listamenn í eina litríka sæng Benedict snýr aftur í Þjóðleikhúsið og Óresteia í útrás Heiðra Sigrúnu Eldjárn með sérstöku brunnloki í Lækjargötu Myndlistarkonan Rúna er látin Netflix setti leikárið í Borgó í uppnám Guðjón Friðriksson heiðursborgari Reykjavíkur Krefja Apple um íslensku Þakklát að þurfa ekki að hafa teppi á klósettinu Íbúar furða sig á horfnu listaverki Borgarleikhúsið sviptir hulunni af Trölla Villi vandræðaskáld valinn bæjarlistamaður Akureyrar Ævar Þór, Birna og Jón hlutu Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar „Hugur manns í þunglyndi er eineltishrotti“ Furðulegar Eddutilnefningar: Nína Dögg, Ólafur Darri og Edda sniðgengin Hafnfirðingar vinna að sýningu um Bó Þórdís Kolbrún og Dagur byrjuð með hlaðvarp saman Pétur Geir opnar nýja vinnustofu með einkasýningu Settu tærnar upp í loft og fengu knús Sjá meira
STARFIÐ:
 Vinna á auglýsingastofum er oftast nær dagvinna, en þó koma tímar þar sem vinnutarnir ná fram yfir dagvinnutímann og langt fram á kvöld. Byrjunarlaun eru frá 250 þúsundum en auglýsingateiknarar með víðtæka þekkingu og reynslu fá allt upp í 600 þúsund í mánaðarlaun. Stéttarfélag grafískra hönnuða er Félag grafískra teiknara sem er sameinað Félagi bókagerðarmanna.
Atvinna Mest lesið „Við flytjum aldrei héðan“ Lífið Þau komust áfram í úrslit Eurovision Lífið Kosningavökur flokkanna: Hótel, veislusalir og einn leynistaður Lífið Stjörnufans hjá Birni á Edition Tónlist Oddvitaáskorunin: Iðulega kallaður Lúlli laukur Lífið Flosi Eiríks selur 300 milljón króna einbýlishús Lífið Aðalpæjur landsins komu saman Tíska og hönnun Oddvitaáskorunin: „Þoli ekki að ég sé ekki skurðlæknir“ Lífið Miðbæjarperla til sölu í litlu ævintýrahúsi Lífið Oddvitaáskorunin: Cheerios með sykri besti morgunmaturinn Lífið Fleiri fréttir Tíminn stóð í stað í bílveltunni Sjóðheitir listamenn í eina litríka sæng Benedict snýr aftur í Þjóðleikhúsið og Óresteia í útrás Heiðra Sigrúnu Eldjárn með sérstöku brunnloki í Lækjargötu Myndlistarkonan Rúna er látin Netflix setti leikárið í Borgó í uppnám Guðjón Friðriksson heiðursborgari Reykjavíkur Krefja Apple um íslensku Þakklát að þurfa ekki að hafa teppi á klósettinu Íbúar furða sig á horfnu listaverki Borgarleikhúsið sviptir hulunni af Trölla Villi vandræðaskáld valinn bæjarlistamaður Akureyrar Ævar Þór, Birna og Jón hlutu Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar „Hugur manns í þunglyndi er eineltishrotti“ Furðulegar Eddutilnefningar: Nína Dögg, Ólafur Darri og Edda sniðgengin Hafnfirðingar vinna að sýningu um Bó Þórdís Kolbrún og Dagur byrjuð með hlaðvarp saman Pétur Geir opnar nýja vinnustofu með einkasýningu Settu tærnar upp í loft og fengu knús Sjá meira