Soðinn laukur 14. júní 2004 00:01 Kristján Hjálmarsson hefur áhyggjur af heimilisbókhaldinu Það er dýrt að lifa. Samkvæmt viðmiðunarneyslu Ráðgjafarstofu heimilanna er framfærslukostnaður einstaklings 36.400 krónur á mánuði, þar af er matur 28.300. Samkvæmt sömu tölum er framfærslukostnaður hjóna 60.400 á mánuði og ef þau eiga eitt barn bætast 20 þúsund krónur við. Ef um bleiubarn er að ræða bætist tæpur fimm þúsund kall við og ef hjónin eða einstaklingurinn eiga bíl bætast rúmar 22 þúsund krónur við. Ég veit ekki hvort þetta er fullkomið viðmiðunarkerfi hjá Ráðgjafarstofunni en það er byggt að norrænni fyrirmynd. Matarverð á Íslandi er heldur hátt miðað við önnur Norðurlönd, jafnvel þótt Bónus bjóði betur. Í vikulegum búðarferðum mínum síðustu ár hef ég komist að því að bestu kaupin felast í lauk. Fyrir nokkru var hægt að fá lauk gefins, sennilega vegna offramleiðslu, en í dag kostar hinn sæmilegasti laukur um fimm krónur út úr búð. Það er ekki mikið. Til að spara útgjöld heimilisins hef ég ákveðið að næstu mánuði muni ég bjóða fjölskyldunni upp á lauk í öll mál, nema á morgnana, enda er morgunmaturinn mikilvægasta máltíð dagsins. Það verður líklega erfitt að kúpla sig út úr kjöt- og fiskáti yfir í laukinn. En það verður bara til að byrja með. Ég bind vonir mínar við að áður en mánuðurinn er úti verði fjölskyldan farin að átta sig á gæðum lauksins. Ég þarf bara að telja henni trú um það. Laukur er ekki vondur! Laukur er hollur og góður! Það besta við laukinn er að það er hægt að matreiða hann á ýmsa vegu; steikja, grilla og jafnvel baka. Ég held líka að það sé fátt sem jafnist á við soðinn lauk. Seinna gæti ég gefið út matreiðslubók. Hún á að heita Lystisemdir lauksins og á eftir að seljast vel. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Stuð milli stríða Mest lesið Fleiri ásælast Grænland en Trump Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Verður Hvalfjörður gerður að einni stærstu rotþró landsins? Haraldur Eiríksson Skoðun Alvarlegar rangfærslur í Hitamálum Eyþór Eðvarðsson Skoðun Bandaríkin léku lykilhlutverk í samruna Evrópu sem leiddi til friðar og efnahagslegrar velsældar Kristján Vigfússon Skoðun Er tímabili friðar að ljúka árið 2026? Jun Þór Morikawa Skoðun Þegar þeir sem segjast þjóna þjóðinni ráðast á hana Ágústa Árnadóttir Skoðun Mótmæli frá grasrótinni eru orðin saga í Evrópu Erna Bjarnadóttir Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun VII. Aðförin að Ólafi Jóhannessyni Hafþór S. Ciesielski Skoðun Djöfulsins, helvítis, andskotans pakk Vilhjálmur H. Vilhjálmsson Skoðun
Bandaríkin léku lykilhlutverk í samruna Evrópu sem leiddi til friðar og efnahagslegrar velsældar Kristján Vigfússon Skoðun
Bandaríkin léku lykilhlutverk í samruna Evrópu sem leiddi til friðar og efnahagslegrar velsældar Kristján Vigfússon Skoðun