Viðskipti innlent
1 2 3 4 5 6 7 8 … 334 ›
Icelandair geti ekki svarað fyrir orðræðuna Forstjóri Icelandair segist ekki getað svarað um orðræðuna í kringum Play í aðdraganda gjaldþrots flugfélagsins. Play sendi kvörtun til Samkeppniseftirlitsins þann 5. september síðastliðinn vegna meintrar misnotkunar Icelandair á markaðsráðandi stöðu eftir að flugmaður félagsins spáði fyrir gjaldþroti félagsins í viðtali á Bylgjunni. Viðskipti innlent 29.9.2025 19:57
Play kvartaði undan Icelandair þremur vikum fyrir gjaldþrot Play sendi kvörtun til Samkeppniseftirlitsins þann 5. september síðastliðinn vegna meintrar misnotkunar Icelandair á markaðsráðandi stöðu. Flugmaður Icelandair hafi vegið að Play með dylgjum um starfsemi, stöðu og horfur og spáð endalokum félagsins. Ófræging flugmannsins hafi grafið undan trausti almennings til Play. Viðskipti innlent 29.9.2025 18:42
Loka Kristjánsbakaríi Stjórn Gæðabaksturs hefur ákveðið að hætta rekstri Kristjánsbakarís á Akureyri. Í skoðun er að nýr rekstraraðili taki við versluninni í Hafnarstræti en verslunin við Hrísalund mun heyra sögunni til. Kaup Ölgerðarinnar á Gæðabakstri, sem tilkynnt voru í byrjun árs, eru til skoðunar hjá Samkeppniseftirlitinu. Viðskipti innlent 29.9.2025 17:16
Hætta rekstri tveggja skipa í hagræðingarskyni Síldarvinnslan í Neskaupstað hefur tekið ákvörðun um að leggja tveimur skipum í flota samstæðunnar. Ákvörðunin er hluti hagræðingaraðgerða til að bregðast við samdrætti aflaheimilda, áhrifum af hækkun á kostnaðarliðum og breytingum á rekstrarumhverfi sjávarútvegsfyrirtækja. Viðskipti innlent 29.9.2025 16:31
Engin ást eftir milli flugmanna og stjórnenda Forseti Íslenska flugstéttarfélagsins (ÍFF) segir gjaldþrot Play hafa komið öllum starfsmönnum á óvart. Hann segir gjaldþrotið gríðarlega þungt fyrir hans félagsfólk en félagið hafi sýnt síðustu mánuði að það hafi horfið frá upphaflegum gildum sínum. Viðskipti innlent 29.9.2025 15:38
Sömu miðarnir kosti nú 370 þúsund Einn farþega Play sem átti flug til Tenerife í morgun segist efast um að hún og fjölskyldan muni fara til Tene í bráð. Flugmiðar sem hún hafi skoðað í morgun hafi síðan þá hækkað um tugi þúsunda. Viðskipti innlent 29.9.2025 14:37
Koma fólkinu heim með fimmtán milljóna króna leiguflugi Tveir hópar eru í Vilníus í Litáen á vegum ferðaskrifstofunnar Eventum Travel og áttu bókað flug heim með Play í gær. Fluginu var frestað til dagsins í dag og verður því ekki farið. Ferðaskrifstofan hefur tekið flugvél á leigu fyrir fimmtán milljónir króna og vonast til þess að geta komið fleiri Íslendingum heim í kvöld. Viðskipti innlent 29.9.2025 14:34
Fargjöld ekki hækkuð af ásettu ráði Forsvarsmenn Icelandair eiga í samtali við stjórnvöld um mögulega aðkomu félagsins að því að bjarga strandaglópum sem sitja fastir erlendis vegna gjaldþrots Play. Forstjóri Icelandair segir samtalið á frumstigi, engar ákvarðanir hafi verið teknar. Viðskipti innlent 29.9.2025 13:22
Samgöngustofa fundaði nýlega með Play og fékk gögn frá KPMG Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra segir Samgöngustofu hafa fengið upplýsingar frá endurskoðendafyrirtækinu KPMG í byrjun september að staða flugfélagsins Play væri í lagi og ekki tilefni til aðgerða gagnvart félaginu. Viðskipti innlent 29.9.2025 12:34
„Við erum ekki með öll eggin í sömu körfu“ Fjármálaráðherra segir tíðindi af gjaldþroti Play í morgun ekki góð. Aftur á móti fljúgi fjöldi flugfélaga til og frá Íslandi og því séu ekki öll eggin í sömu körfu hvað það varðar. Þá segir hann ríkið vel í stakk búið til að takast á við áfallið. Viðskipti innlent 29.9.2025 11:45
„Hver fyrir sig hvað það varðar“ Einar Örn Ólafsson, forstjóri Play, segir gjaldþrot félagsins miklar sorgarfréttir fyrir starfsfólk félagsins. Margir muni tapa á gjaldþrotinu, hluthafar, kröfuhafar, birgjar og viðskiptavinir. Þá verði það til þess að Íslendingar tapi til lengri tíma vegna hærra verðs flugfara og minna framboðs. Félagið sé illu heilli ekki í neinni stöðu til að aðstoða strandaglópa erlendis. Viðskipti innlent 29.9.2025 10:49
Farþegar Play í Keflavík klóra sér í kollinum Anton Ingi Rúnarsson knattspyrnuþjálfari er einn þeirra farþega Play sem situr nú eftir á Keflavíkurflugvelli án flugs eftir gjaldþrot félagsins. Hann átti flug til Tenerife núna klukkan 10:30 og var á klósettinu þegar hann fékk tíðindin af falli félagsins. Miðann keypti hann fyrir gjafabréf sem hann fékk eftir ótrúlega seinkun á flugi félagsins í vetur. Viðskipti innlent 29.9.2025 10:36
Ráðin sölu- og markaðsstjóri hjá Alfreð Alfreð hefur ráðið Elsu Thorsteinsson sem nýjan markaðs- og sölustjóra fyrirtækisins. Viðskipti innlent 29.9.2025 10:13
Kveðjubréf Einars forstjóra til starfsfólks Einar Ólafsson forstjóri Play þakkar starfsfólki sínu fyrir allt það sem það hefur gert fyrir félagið. Eftir á að hyggja hefði þurft að breyta viðskiptamódeli félagsins fyrr til að auka möguleika á árangri. Viðskipti innlent 29.9.2025 09:58
Play er gjaldþrota Flugfélagið Play er gjaldþrota og hefur hætt starfsemi. Fjögur hundruð missa vinnuna og ferðaáætlanir þúsunda farþega eru í uppnámi. Hægt er að lesa um nýjustu tíðindi í vaktinni að neðan. Viðskipti innlent 29.9.2025 09:37
Bein útsending: Staða aðfluttra á húsnæðismarkaði HMS stendur fyrir opnum fundi um stöðu aðfluttra á húsnæðismarkaði klukkan 11. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi í spilaranum að neðan. Viðskipti innlent 29.9.2025 09:30
Spennandi tími til að opna nýjan fjölmiðill Þorsteinn J. Vilhjálmsson, eða Þorsteinn J., opnaði á dögunum nýjan fjölmiðil, TV1. Fjölmiðlinum er ætlað að vera vettvangur ólíkra blaðamanna fyrir fjölbreyttar sögur. Þorsteinn segir að þar verði hægt að nýta nýja tækni og leiðir til dreifingar til að ná til fólks. Þorsteinn segir þetta vera spennandi tíma í fjölmiðlum. Viðskipti innlent 27.9.2025 15:01
Lífsverk og Almenni lífeyrissjóðurinn í eina sæng Stjórnir Lífsverks og Almenna lífeyrissjóðsins skrifuðu í dag undir samrunasamning. Ekki verður þó af samrunanum nema hann verði samþykktur á sjóðfélagafundum og af fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Viðskipti innlent 26.9.2025 16:26
Lagning gjaldþrota Lagning sem hefur lagt bílum ferðalanga á leið úr landi á Keflavíkurflugvelli undanfarin ár er gjaldþrota. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Fyrirtækið var auglýst til sölu í október í fyrra. Kvartanir streyma til Neytendasamtakanna vegna gjalda sem ISAVIA innheimtir vegna bíla sem voru í geymslu Lagningar. Viðskipti innlent 26.9.2025 13:58
Fyrrverandi bankastjóri nýr forstjóri Thor landeldis Steinþór Pálsson hefur verið ráðinn forstjóri Thor landeldis. Viðskipti innlent 26.9.2025 12:31
Edda María leiðir stafræna markaðsþjónustu Vettvangs Edda María Birgisdóttir hefur verið ráðin til að leiða nýja, stafræna markaðsþjónustu vefstofunnar Vettvangs. Edda María starfaði áður hjá frá Ístex hf. sem viðskiptastjóri og sá um markaðsmál og dótturfyrirtækið, Lopidraumur. Viðskipti innlent 25.9.2025 19:05
Uppsagnir hjá Fjársýslunni Sex starfsmönnum Fjársýslu ríkisins var sagt upp störfum í dag. Viðskipti innlent 25.9.2025 16:21
Guðný ráðin fræðslustjóri og Kristófer Orri í gjaldeyrismiðlun Guðný Halldórsdóttir hefur verið ráðin fræðslustjóri Íslandsbanka og Kristófer Orri Pétursson hefur hafið störf í gjaldeyrismiðlun sama banka. Viðskipti innlent 25.9.2025 13:15
Kostaði tvo milljarða að selja Íslandsbanka Kostnaður ríkisins við þriðja útboð á hlutum ríkisins í Íslandsbanka nam rétt rúmum tveimur milljörðum króna. Það nemur 2,22 prósent af heildarsöluandvirðinu. Viðskipti innlent 25.9.2025 11:13
Verðbólgan 4,1% og fer upp á milli mánaða Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,11% á milli mánaða samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar. Síðastliðna tólf mánuði mælist verðbólga þannig 4,1% en er 3,2% sé húsnæði tekið út fyrir sviga. Viðskipti innlent 25.9.2025 09:28
Bein útsending: Framsýn forysta Forseti Íslands, forseti ÍSÍ og forstjórar Amaroq og Landsnets halda erindi á haustráðstefnu Stjórnvísi sem ber yfirskriftina Framsýn forysta sem er þema félagsins starfsárið 2025 til 2026. Viðskipti innlent 25.9.2025 08:02
Opnar stað í anda Kaffi Vest í Fossvoginum Parið Auðunn Blöndal og Rakel Þormarsdóttir hyggjast opna veitingastað á neðri hæð verslunarkjarnans Grímsbæjar. Hjónin hafa verið með hugmyndina í maganum lengi en þurft að bíða eftir réttu staðsetningunni. Hvorki er um sportbar né skemmtistað að ræða heldur notalegan hverfisstað. Viðskipti innlent 24.9.2025 16:00
Neyslan mikil og sjá ekki að stýrivextir fari hratt lækkandi Greiningardeild Íslandsbanka telur líklegt að vaxtalækkunarferli Seðlabanka Íslands ljúki líklega með stýrivöxtum á bilinu 5,5 til 6,0 prósent árið 2027. Íslensk heimili séu neysluglöð í ferðalögum og bílkaupum án þess þó að skuldsetja sig. Kaupmáttur sé mikill og íbúðamarkaður í jafnvægi. Viðskipti innlent 24.9.2025 14:22
Sexfölduðu veltuna á einu ári Sprotafyrirtækið Aldin Dynamics hlaut í dag viðurkenningu sem Vaxtarsproti ársins fyrir öfluga uppbyggingu sprotafyrirtækis. Velta jókst um 514 prósent milli ára, fór úr 151 milljón króna í 929 milljónir króna. Viðskipti innlent 24.9.2025 14:02
Gjaldeyrisforðinn nálægt billjón króna Seðlabankastjóri segir útlit fyrir að fasteignamarkaðurinn sé á leið í nokkuð jafnvægi. Ekki hefur verið slakað á lántökuskilyrðum en það kunni að verða tekið til skoðunar á árinu. Gjaldeyrisforði bankans sé vel í stakk búinn til að bregðast við ytri aðstæðum. Viðskipti innlent 24.9.2025 11:50