Myndaveisla: „Við sprengjum þetta hús í loft upp“ Hljómsveitin Quarashi tróð upp fyrir smekkfullri Laugardalshöll á dögunum í tilefni af þrjátíu ára starfsafmæli en þar komu einnig fram margir af þekktustu tónlistarmönnum landsins. Sölvi Blöndal, einn forsprakki sveitarinnar, hafði í viðtali lofað því að þetta yrðu stærstu tónleikar þeirra til þessa. Tónlist 20.9.2026 17:44
Sheeran bað aðdáendur afsökunar Ed Sheeran bað aðdáendur sína afsökunar á því að hafa gert „mistök“ þegar hann hélt sína fyrstu tónleika eftir að rapparinn Macklemore var rekinn af tónleikaferð hans fyrir að lýsa yfir stuðningi við Palestínu á tónleikum þegar hann hitaði upp fyrir Sheeran. Tónlist 20.9.2026 11:28
„Þú ætlar ekki að verða feilaður rappari“ besta mantran „Mín skilaboð eru alltaf: Ekki láta það trufla þig hvað fólki finnst. En það síðasta sem þig langar er að vera rappari sem feilaði í litlu samfélagi eins og Akureyri. Þessar áhyggjur urðu samt rosaleg hvatning fyrir mig,“ segir rapparinn og rísandi stjarnan Pétur Már Guðmundsson, sem flestir þekkja sem heilagan þar sem hann notast við listamannanafnið Saint Pete. Tónlist 19.9.2026 07:01
Fjórtán manns hita upp fyrir Mos Def í Gamla bíó Á annan tug tónlistarmanna mun hita upp fyrir Yasiin Bey, fyrrum Mos Def, þegar hann leikur á tónleikum í Gamla bíó á fimmtudag. Tónlist 7.9.2026 21:07
Lifa í draumi og heiðra Eyfa Hljómsveitin Lón með tónlistarmanninn Valdimar Guðmundsson í fararbroddi hafa sent frá sér ábreiðu af goðsagnakenndu íslensku dægurlagi. Tilgangur útgáfunnar er að heiðra Eyjólf Kristjánsson, sem er betur þekktur sem Eyfi. Tónlist 7.9.2026 16:01
Laufey djammaði með Robyn og Troy Sivan Stórstjarnan Laufey Lín er mætt til New York eftir stutt og gott stopp hér á Íslandi. Dagar tónlistarkonunnar eru sannarlega viðburðaríkir en um helgina skellti hún sér á tónleika hjá sænsku poppstjörnunni Robyn og átti góðar stundir með henni að þeim loknum. Tónlist 7.9.2026 14:00
HAM boða endalok alls Þungarokkshljómsveitin HAM er um þessar mundir að leggja lokahönd á nýja breiðskífu sem vonast er eftir á streymisveitu í október og á tvöföldum vínyl í nóvember. Platan heitir Endalok alls og er sú ellefta sem sveitin sendir frá sér. Tónlist 2.9.2026 09:57
Ein langlífasta tónlistarhátíð landsins hefst í sautjánda sinn Tónlistarhátíðin Extreme Chill hefst á morgun en hún fer fram í Reykjavík dagana 2.–6. september. Þetta er 17. árið sem hátíðin er haldin. Tónlist 1.9.2026 15:01
Afþakkar Grammy-tilnefningu Sænska poppstjarnan Zara Larsson vill ekki vera tilnefnd sem besti nýliðinn á Grammy-verðlaunahátíðinni 2027. Ástæðan er einföld, hún er enginn nýgræðingur í tónlistinni. Tónlist 1.9.2026 12:47
Miley losar sig við eftirnafnið Poppstjarnan Miley Cyrus stendur á tímamótum fyrir útgáfu tíundu plötu sinnar. Hún virðist hafa ákveðið að losa sig við eftirnafn sitt og ætlar greinilega einungis að nota listamannsnafnið Miley héðan af. Tónlist 1.9.2026 11:52
Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Stemmingin var rífandi góð þegar Nova fagnaði útgáfu ábreiðunnar „Einhver elskar mig“ eftir Tatjönu í Bíó Paradís. Dýnamíska dúóið Cyber hitaði upp fyrir Tatjönu sem flutti síðan útgáfu sína af sígildum smelli Páls Óskars auk fleiri laga. Tónlist 1.9.2026 11:01
Highway 61 Revisited fagnar 61 árs afmæli Sjötta plata tónlistarmannsins Bobs Dylan, Highway 61 Revisited, kom út þann 30. ágúst 1965, fyrir 61 ári og einum degi, og olli straumhvörfum í rokktónlist. Platan markaði tímamót á ferli Dylan sem færði sig með plötunni úr órafmagnaðri þjóðlagatónlist í rafmagnað rokk. Tónlist 31.8.2026 17:15
Azealia Banks heldur tónleika í Austurbæjarbíói Tónlistarkonan Azealia Banks, sem er þekktust fyrir smellinn „212“ og að sitja ekki á umdeildum skoðunum sínum, heldur tónleika í Austurbæjarbíói fimmtudaginn 3. desember næstkomandi. Tónlist 27.8.2026 10:27
Sísí Ey snýr aftur eftir tíu ára fjarveru Danstónlistardrottningarnar í hljómsveitinni Sísí Ey eru mættar aftur með splunkunýtt lag. Tíu ár eru frá því að hljómsveitin gaf síðast út efni en hún sló eftirminnilega í gegn árið 2013 með smellinum Ain’t Got Nobody. Tónlist 26.8.2026 09:00
Myndaveisla: Leynigestir og innlifun á stórafmælistónleikunum Fjörutíu ára afmælistónleikar Bylgjunnar voru haldnir í Hljómskálagarðinum á Menningarnótt. Stórstjörnur líkt og Friðrik Dór, Birgitta Haukdal og Stebbi Hilmars voru meðal þeirra sem stiga á svið en stemningin var gríðarleg þrátt fyrir rigningu og rok. Tónlist 25.8.2026 12:10
Lag sem enginn söng á toppnum í Ástralíu Dansútgáfa af Madonnu smellinum Like a Prayer hefur orðið eitt vinsælasta lag Ástralíu, þótt enginn söngvari hafi flutt lagið. Röddin og trommurnar voru búnar til með gervigreind og velgengni lagsins hefur nú orðið kveikjan að nýjum reglum um ástralska vinsældalista. Tónlist 25.8.2026 11:25
Versace-ást Villa Vill kveikjan að lagi og skúlptúr Plötusnúðurinn DJ Margeir varð innblásinn af stjörnulögfræðingnum Villa Vill og lét smella af sér mynd á skýlu og Versace-skyrtu í Hótel Keflavík. Ljósmyndin gat af sér lagið „Strike a Pose (I'm Wearing Versace)“ með rapparanum Magugu sem þeir frumfluttu á Menningarnótt. Margeir ætlar svo að taka lagið enn lengra og búa til skúlptúr eftir ljósmyndinni. Tónlist 24.8.2026 15:00
Fór á fimm tónleika Ariönu Grande á viku „Ég held þetta sé komið upp í sjötíu tónleika núna, allt á síðustu rúmu fjórum árum,“ segir Heimir Ingi Róbertsson, tónleikaáhugamaður með meiru og starfsmaður á hjúkrunarheimili. Heimir hefur flogið víða um heim til að sækja fjölbreytta tónleika og segir þetta klárlega mikla ástríðu hjá sér. Tónlist 24.8.2026 13:00
Dimma búin að fylla í skarð Stebba Jak Þungarokkssveitin Dimma hefur fundið sér nýjan söngvara, hinn kólombísk-íslenska Ivan Mendez, eftir að Stefán Jakobsson hætti í sveitinni vegna ósættis við bassaleikarann Silla Geirdal. Dimma vinnur þessi dægrin að sjöundu breiðskífu sinni og gaf út fyrsta lagið af henni í dag. Tónlist 24.8.2026 09:40
Gestafjöldi fjórfaldaðist á Kveldúlfi Tónlistarhátíðin Kveldúlfur fór fram í annað sinn síðustu helgi á Hjalteyri. Sara Bjarnason skipuleggjandi hátíðarinnar segir hátíðina hafa heppnast gríðarlega vel. Tónlist 19.8.2026 14:16
Kanye treður upp í Rússlandi Rapparinn Ye, betur þekktur sem Kanye, West heldur tvenna tónleika í Sankti Pétursborg í Rússlandi í október. West er stærsti tónlistarmaðurinn sem treður upp í landinu síðan Rússar réðust inn í Úkraínu í febrúar 2022. Á síðustu árum hafa nöfn á borð við Jason Derulo, DaBaby, Flo Rida, Akon og Timbaland komið þar fram. Tónlist 19.8.2026 13:40
Hip-hop sveitin Tha Alkaholiks í Iðnó í október Hip-hop sveitin Tha Alkaholiks heldur tónleika á Íslandi 7. október næstkomandi. Tónleikarnir fara fram í Iðnó og aðeins verða 300 miðar í boði. Tónlist 19.8.2026 09:04
Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Írski söngvarinn Hozier var einn þeirra fjölmörgu sem lögðu leið sína til Íslands í síðustu viku þegar almyrkvi gekk fyrir sólu miðvikudaginn 12. ágúst síðastliðinn. Tónlistarmaðurinn nýtti tímann vel og fór meðal annars á tónlistarhátíðina EFTIR sem vinur hans Colm O'Herlihy hélt ásamt samstofnendum Inni music og fleiri vel völdum. Tónlist 16.8.2026 23:42
Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Plötusnúðurinn DJ Margeir hefur í rúm tíu ár haldið blokkarpartýið MOMENT á Klapparstíg á Menningarnótt. Tónleikarnir hafa alltaf verið ókeypis en í ár verða þeir haldnir til styrktar Minningarsjóði Bryndísar Klöru og gestir hvattir til að styrkja sjóðinn. Þá mun Margeir jafna öll framlög sem berast, allt að 500 þúsund krónum. Tónlist 16.8.2026 11:30