Sögðu líf Breta í hættu og skutu að breskri herstöð Íranir skutu tveimur eldflaugum að sameiginlegri herstöð Bretlands og Bandaríkjanna á Chagos-eyjum í Indlandshafi í dag. Önnur eldflaugin var skotin niður af Bandaríkjaher en hin hrapaði vegna bilunar. Erlent 21.3.2026 20:40
Robert Mueller er látinn Robert S. Mueller, sem stýrði bandarísku alríkislögreglunni í tólf ár og starfaði sem sérstakur saksóknari hjá dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna, er látinn. Hann varð 81 árs. Erlent 21.3.2026 18:00
Telja Musk hafa vísvitandi ýtt undir gerð kynferðislegra djúpfalsana Franskir saksóknarar telja að Elon Musk, eigandi samfélagsmiðilsins X, hafi hvatt til þess að gervigreindin Grok yrði notuð til að búa til kynferðislegar djúpfalsanir. Með því hafi hann aukið virði fyrirtækisins. Erlent 21.3.2026 15:45
Mette-Marit í einkaviðtali við NRK: „Að sjálfsögðu óska ég þess að hafa aldrei hitt hann“ Erlent 20.3.2026 08:07
Orbán stendur í vegi fyrir lánveitingunni til Úkraínu Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, hefur vakið mikla reiði meðal Evrópuleiðtoga eftir að hann gekk á bak orða sinna. Orbán hafði í desember sagst myndu samþykkja 90 milljarða evra lán til Úkraínu svo lengi sem Ungverjar yrðu ekki meðal lánveitenda en hefur nú dregið það til baka. Erlent 20.3.2026 06:33
Segir Írani ekki lengur geta auðgað úran Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, heldur því fram að Íranir geti ekki lengur auðgað úran, sem þarf til þess að búa til kjarnorkuvopn, eða framleitt frekari skotflaugar. Hann neitar því að Ísraelsmenn hafi dregið Bandaríkjamenn í stríðið og segir Ísraelsmenn ætla að hætta að ráðast á olíuinnviði Írans. Erlent 19.3.2026 21:51
Bandarískur stjúpsonur El Mencho fékk krúnuna Bandarískur ríkisborgari virðist hafa tekið stjórn á öflugustu glæpasamtökum Mexíkó. Juan Carlos Valencia González mun hafa tekið fljótt við stjórn Jalisco New Generation Cartel, eða JNGC, stundum CJNG, eftir að sjúpfaðir hans Nemesio Oseguera Cervanter, eða „El Mencho“, var felldur af hermönnum í Mexíkó í síðasta mánuði. Erlent 19.3.2026 17:52
Hittler mætir Zielenski í frönskum bæjarstjóraslag Sveitarstjórnarkosningar í franska smáþorpinu Arcis-sur-Aube hafa vakið heimsathygli að undanförnu, fyrir þær sakir að frambjóðendurnir bera nöfn sem hljóma kunnuglega. Erlent 19.3.2026 16:42
Útskrifuð fyrir fimm mánuðum en neitar að fara Forsvarsmenn sjúkrahúss í Flórída hafa höfðað mál gegn konu sem hefur alfarið neitað að yfirgefa sjúkrahúsið í þá fimm mánuði síðan hún var útskrifuð. Dómari hefur verið beðinn um að veita starfsmönnum sjúkrahússins leyfi til að flytja konuna á brott og það með aðstoð lögreglunnar, reynist það nauðsynlegt. Erlent 19.3.2026 16:37
Vilja 25 billjónir: „Það þarf peninga til að drepa vonda kalla“ Forsvarsmenn varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna eru sagðir hafa farið fram á við Hvíta húsið að fá tvö hundruð milljarða dala í aukafjárveitingu vegna stríðsins gegn Íran. Pete Hegseth, varnarmálaráðherra, segir þá tölu geta breyst en það þurfi „peninga til að drepa vonda kalla“. Erlent 19.3.2026 13:52
Tilbúnir til að sprengja flugbrautir á Grænlandi Þegar danskir hermenn voru fluttir til Grænlands í janúar höfðu þeir með sér sprengiefni. Þau átti að nota til að sprengja flugbrautir í Nuuk og Kangerslussuaq, til að gera Bandaríkjamönnum erfiðara um vik með að senda hermenn til Grænlands. Þetta var ef Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, myndi reyna að taka Grænland með hervaldi, eins og hann hafði gefið til kynna að kæmi til greina. Erlent 19.3.2026 12:58
Farage í klandri vegna myndbanda fyrir nýnasista og öfgamenn Nýnasistasamtök og öfgahægrióeirðaseggur voru á meðal þeirra sem Nigel Farage, leiðtogi Umbótaflokks Bretlands, var tilbúinn að hvetja til dáða gegn greiðslu. Þetta sýnir greining bresks blaðs á þúsundum slíkra myndbanda sem Farage hefur selt undanfarin ár. Erlent 19.3.2026 11:28
Banksy opinberaður, enn einu sinni Hulunni hefur enn einu sinni verið svipt af götulistamanninum Banksy, sem hefur í rúma þrjá áratugi farið huldu höfði, að mestu. Hann er fæddur 1973 sem Robin Gunningham og er frá Bristol í Englandi. Hann breytti þó nafni sínu í David Jones til að eiga auðveldara með að fara huldu höfði. Erlent 19.3.2026 11:10
Fjárframlög til BBC World Service aukin vegna upplýsingaóreiðu Stjórnvöld á Bretlandseyjum hafa ákveðið að hækka fjárframlög til BBC World Service um ellefu milljónir punda á ári næstu þrjú árin. Fjármagninu er ætlað að efla starfsemina í ljósi aukinnar upplýsingaóreiðu í heiminum. Erlent 19.3.2026 10:38
Black Cube sakað um njósnir fyrir kosningar í Slóveníu Ísraelska leyniþjónustufyrirtækið Black Cube er sakað um leka upptökum sem var aflað með leynilegu eftirliti og hlerunum til þess að koma höggi á forsætisráðherra Slóveníu rétt fyrir kosningar. Sama fyrirtæki njósnaði um son íslensks þingmanns og kom leynilegum upptökum af honum í umferð. Erlent 19.3.2026 09:09
Viðvörun gefin út á Bretlandseyjum vegna heilahimnubólgu Yfirvöld á Bretlandseyjum hafa gefið út viðvörun og hvatt heilbrigðisstarfsmenn um að vera á varðbergi gagnvart einkennum heilahimnubólgu. Erlent 19.3.2026 08:15
Trump hótar umfangsmiklum árásum á olíuinnviði Íran Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað umfangsmiklum árásum á Suður Pars-gasvinnslusvæðið ef Íranir gera frekari árásir á gasinnviði í Katar. Erlent 19.3.2026 06:51
Olíuvinnslur rýmdar eftir árásir á eitt stærsta gassvæði heims Árásir voru gerðar á eitt stærsta gassvæði heimsins í Íran í dag. Svæði þetta kallast Pars-gassvæðið og deila Íranir því með Katörum, hinum megin við Persaflóa. Ráðamenn í Katar hafa sakað Ísraela um árásirnar í dag en myndefni af vettvangi gefur til kynna að margir gaspallar standi í ljósum logum. Erlent 18.3.2026 15:08
Reyna að rjúfa hljóðmúrinn án láta Starfsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) undirbúa aðra flugferð tilraunaflugvélarinnar X-59. Vonast er til þess að flugvél þessi eigi að geta rofið hljóðmúrinn án þess að því fylgi hinar hefðbundnu drunur og læti. Erlent 18.3.2026 14:03
Sænskur ríkisborgari tekinn af lífi í Íran Sænskur ríkisborgari var líflátinn í Íran fyrr í dag. Frá þessu greindi Maria Malmer Stenergård, utanríkisráðherra Svíþjóðar, í dag. Erlent 18.3.2026 13:15
Säpo varar við aukinni ógn frá Rússlandi Forsvarsmenn sænsku öryggislögreglunnar Säpo vara við því að ógn Rússa gagnvart Svíþjóð gæti aukist. Rússar eru sagðir beita fjölþátta ógnum í meiri mæli en áður en hundruð grunsamlegra atvika hafa verið til rannsóknar í Svíþjóð sem grunur leikur á að rekja megi til Rússlands, án þess þó að tekist hafi að sanna tengingu þar á milli. Erlent 18.3.2026 13:11
Krefjast rúmlega sjö ára fangelsis yfir glæpaprinsinum Saksóknarar krefjast þess að Marius Borg Høiby, sonur krónprinsessu Noregs, verði dæmdur í sjö ára og sjö mánaða fangelsi fyrir nauðgun og annað ofbeldi. Fjölmiðlafár í kringum mál hans eigi ekki að milda refsingu hans. Erlent 18.3.2026 11:12
Felldu enn einn ráðherrann: Reyna að ryðja leiðina fyrir Írani en gætu eflt herinn Ísraelar segjast hafa fellt enn einn ráðherrann í Íran. Að þessu sinni er um að ræða Esmaeil Khatib, ráðherra leyniþjónustumála í Íran, en fyrr í vikunni felldu þeir Ali Larijani, forseta þjóðaröryggisráðs Íran, sem var talinn vera raunverulegur stjórnandi landsins eftir að æðstiklerkurinn Ali Khamenei var ráðinn af dögum fyrir rúmum tveimur vikum. Erlent 18.3.2026 11:01
Tillögu um lögleiðingu dánaraðstoðar hafnað í Skotlandi Skoska þingið hefur hafnað lögleiðingu dánaraðstoðar en tillaga þess efnis var felld með 69 atkvæðum á móti 57. Frumvarpið hafði mætt töluverðri mótspyrnu og þá var harðlega deilt um það á þinginu í síðustu viku hvort einstaklingar í viðkvæmri stöðu myndu njóta nægilegrar verndar frá mögulegum þvingunum. Erlent 18.3.2026 08:12
Skárri staða í Álasundi Betur fór en á horfðist í Álasundi í Noregi þar sem mikill gróðureldur ógnaði byggingum í bænum í gær og í nótt. Mikið lið slökkviliðs barðist við eldinn og vindáttinn hefur einnig orðið til þess að menn eru bjartsýnni en þeir voru í gærkvöldi að því er segir í umfjöllun Verdens gang í morgun. Erlent 18.3.2026 07:34